25.6.2008 | 00:23
Aðeins 2 mínútur með forystu
Þeir eru alveg stórmagnaðir Tyrkirnir. Ekki var þeim spáð góðu gengi á EM en þeir hafa sýnt gríðarlega baráttu og unnið Evrópubúa á sitt band.
Það er athyglisvert og hreint út sagt ótrúlegt að lið Tyrklands sé að spila í undanúrslitum á EM og aðeins búnir að hafa forystu í 2 mínútur í leikjunum fjórum. Aðeins tvær mínútur af 390 mínútum.
Fyrsti leikurinn við Portúgal tapaðist 0-2.
Annar leikurinn, var við Sviss og vannst 2-1 sigur en þá skoraði Arda Turan mark í blálokin, eða á 90+2 mínútu.
Nihat Kahveci sá svo um að slá Tékkana út með glæsimarki á 89. mínútu í 3-2 sigri.
Þriðja hetjan, Semih Serturk skoraði svo magnaðasta mark EM á 30+2 í viðbótartíma.
Sem sagt, uppsöfnuð forysta í tvær mínútur. Alveg magnað.
Hvernig fer svo laskað lið Tyrkjana út úr leiknum við Þjóðverja? Tja, ég er hræddur um að ævintýrið sé á enda runnið og öll kraftaverkin búin eða hvað? Hefur Tyrkneska þjóðin taugar í fleiri leiki?
Tyrkir með þrettán útispilara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir upplýsingarnar Júlíus!
Heyrði tölfræðina með 2 mínútur frá Steve Wilson, álitsgjafa hjá BBC. Er BBC ekki eins og Mogginn. Þau ljúga ekki.
Ég man eftir vináttulandsleik Íslands og Tyrklands á Laugardalsvelli árið 1991. þá voru Tyrkir fallbyssufóður fyrir Íslendinga. Ísland vann leikinn 5-1 og skoraði Arnór Guðjohnsen fjögur mörk. Nú er öldin önnur, við orðin fallbyssufóður. Hvað breyttist?
Sigurpáll Ingibergsson, 25.6.2008 kl. 14:06
Árið 1991 var Enginn í markinu hjá Tyrkjunum og því lítið mál fyrir íslensku meðaljónana að setj'ann 5 sinnum
Björn Kr. Bragason, 29.6.2008 kl. 02:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.