Langbrók

"Þá skal eg nú muna þér kinnhestinn og hirði eg aldrei hvort þú verð þig lengur eða skemur."  Svo mælti Hallgerður Langbrók er Gunnar á Hlíðarenda, eiginmaður hennar bað hana um að gera sér greiða í hremmingum sínum.

Ég varði síðustu helgi í útilegu í tjaldi á tjaldstæði Langbrók í Fljótshlíðinni. Það er varla hægt að kalla tjaldstæði, tjaldstæði í dag, því eintómir húsbílar, tjaldvagnar og fellihýsi voru á túninu. Við "tjaldstæðið" er Kaffi Langbrók sem er notalegt kaffihús í sveitinni fögru þar sem Gunnar snéri aftur.  Meyjarhof eða sólarhof er á tjalsvæðinu og er notað fyrir ferðahópa. Hundar voru ekki bannaðir og var mikið um hunda og ekki urðu þeir til neinna vandræða. Fín aðstaða og mikil afþreying er í boði í Fljósthlíðinni.

Fjallið Þríhyrningur gnæfir yfir Fljótshlíðina og Landeyjar, þó aðeins 667 metra hátt sé. Sást vel lögunin og nafngift fjallsins er augljós. Frá grunnbúðunum sást vel inn Flosadal milli tindanna þriggja. En eftir brunann á Bergþórshvoli héldu brennumenn, með Svínfellinginn Flosa Þórðarson í broddi fylkingar þar fyrir og dvöldu þar í þrjá sólarhringa  þar til þeir sáu að þeim stóð ekki lengur hætta af eftirleitarmönnum. Hvort sem þessi felustaður hafi verið notaður eða ekki, þá má hinn óþekkti höfundur Njálu eiga það að hann hefur valið góðan felustað fyrir söguna. Þríhyrningur togaði í augað alla helgina.

Það var margt brallað í útilegunni. Ari litli er með veiðidellu og fórum við feðgar í veiðiferð í líflausan læk. Ekki veiddist branda. Við fórum í skemmtilegt og fjölskylduvænt spil sem er frá víkingaöld, Kubb heitir það og er einfalt og spennandi. Keyrt var inn Fljótshlíðina en ekki sáust bleikir akrar, hins vegar skörtuðu Eyjafjallajökull, Mýrdalsjökull og Tindfjallajökull sínu fegursta.  Þrumur og eldingar komu á sunnudeginum og vöktu mikla athygli en sólin og skúrir tókust á.

AriThrihyrningur

Ari veiðimaður staddur á hofstað með Þríhyrning í bak.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband