Lifi ísbjörninn

Nú vantar alveg almennilegan dýragarð hér á Íslandi.  Auðvitað á að reyna allt til að ná dýrinu lifandi. Ef við getum ekki hýst það, þá á bara einfaldlega að senda það heim til sín aftur. Þó það kosti eina ríkustu þjóð veraldar nokkrar krónur, þá er fordæmið gott. Bera virðingu fyrir náttúrinni.

Þessi atburður leiðir hugann að hugarflugi sem ég átti eitt sinn en ég var undir miklum áhrifum af gróillum í Loro Park á  Tenerife. Þar voru fimm karlgórillur í góðu búri en þær eru í útrýmingarhættu. Aðeins til um 700 stykki í þessum hættulega heimi. Því kom hugmyndin upp um ísbjarnarbúgarð í ríki Vatnajökuls. Ein pælingin var að senda birnina á jökul á veturna. Þessi ísbjarnadýragarður gæti trekkt að ferðamenn og ekki yrði hann óvinsæll ef nýr húnn kæmi undir. Knútur litli dró að sér milljónir manna í Þýskalandi.


mbl.is Lögregla á slóðum ísbjarnarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ísbirnir hafa lífviðurværi sitt af því að veiða á sjó. þeir veiða ekki á landi eða mjög sjaldan. að ætla að flytja þá upp á jökul væri því fásinna

áhugamanneskja um ísbirni (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 11:44

2 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Fásinna! Þeir myndu borða í boði rekstraraðila, rétt eins og í dýragarði. Hugmyndin gekk út á að leyfa þeim að fá smá rými til að hreyfa sig. Allt er hægt ef viljinn er fyrir handi.. og fjármagn.

Sigurpáll Ingibergsson, 3.6.2008 kl. 11:51

3 identicon


Sammála þér með að ná greyinu lifandi, Palli.  Um dýragarð, veit ég hinsvegar ekki.  Mér finnst dýrum yfirleitt líða illa þar, þótt um flotta dýragarða hafi verið að ræða.  Hefði átt að senda það heim til sín til Grænlands á kvótalausum fiskibáti að norðan.  Óttalegur aumingjaskapur að koma svona fram við villt dýr í ógöngum.

Einar Örn (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 14:36

4 identicon

Alveg med olikindum hvernig var stadid ad thessu mali. En dyrid hefr verid lengi a sundi, thad er lagt i isrondina.

Grjoni Bjornsson

Grjoni (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 16:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 89
  • Frá upphafi: 226647

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband