Krákan

Kraken eða krákan er sæskrímsli sem dvaldi í fyrir utan strendur Íslands og Noregs.  Skrímslið var gríðarstórt, allt að 13 metrar með mörgum löngum örmum. Það gerði árásir á minni skip og sökkti þeim.

Nú er krákan komin á kreik. Hún býr ekki í sjónum við strendur okkar. Heldur býr hún djúpt í tölvukerfum heimsins. Hún gerir  árásir á tölvukerfi og sendir ruslpóst sem víðast. Hún getur sökkt illa vörðum tölvum á augabragði.

Kraken er stórt net laumuforrita (Botnet). Talið er að um 400.000 tölvur knýi það áfram. Svo telja sérfræðingar öryggisfyrirtækisins Damballa.  Talið er 50 af  500  fyrirtækjum á Fortune listanum hafi sýkst af aðgerðum Kraken og 80% af vírusvörnum þekki ekki brögð hennar. Kraken er ekkert annað en ruslpóstsendir sem knúin er af hagnaðarsjónarmiðum.  „Kapítalisminn í sinni verstu mynd“.

Slæmu fréttirnar eru þær að Kraken laumuforritanetið fer stækkandi  sé að ná Storm laumunetinu að stærð. Því fer ruslpósti fjölgandi.

Vonum að töluöryggissérfræðingar finni út meðlimi Krákunnar og komi undir lás og slá.

Botnet

Dæmigerður lífsferill ruslpósts sem á uppruna sinn í laumuneti.

(1) Vefsíða ruslpóstsendanda    (2) Spammari   (3)Vélbúnaður ruslpóstsendanda

(4) Sýkt tölva   (5) Vírus eða Trojan  (6) Póstþjónn    (7) Notandi   (8) Vefumferð

 

Heimild: 

Wikipedia

SecurityProNews


mbl.is Yfir milljón tölvuóværur í umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Töff..gaman að lesa þessa pósta!

Sturla Þorvaldsson (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 23:02

2 identicon

Erum við kannski að tala um það að Skynet sé komið í lofið? http://en.wikipedia.org/wiki/Skynet_(fictional)

Sturla Þorvaldsson (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 107
  • Frá upphafi: 226503

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband