120 ára?

Í dag, 12. mars er afmælisdagur meistara Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar frá Hala. Ekki er alveg öruggt að Þórbergur sé 120 ára en lengi vel var talið að hann væri fæddur árið 1889. En kirkjubók ein breytti aldrinum. Haldið var upp á merk tímamót á oddatöluárinu áður fyrr. T.d. hundrað ára ártíðin.

Þórbergur var mikill nákvæmnismaður og því er þetta ósamræmi ennþá spaugilegra.

Í bókamarkaði í Perlunni voru aðeins þrjár bækur eftir Þórberg. Edda, Ýmsar ritgerðir I og II. Hina átti ég fyrir.

Ég fjárfesti í ritgerðunum tveim en hafði lesið fyrir nokkru.  Ein ritgerðin er ritdómur um Hornstrendingabók eftir Þorleif Bjarnason. Heitir hún Einum kennt - öðrum bent. Er þessi ritdómur einn sá magnaðasti sem skrifaður hefur verið hér á landi og þó víðar væri leitað! Grípum niður kafla 2 - Skallar.

"..Víða stafa þessir skallar í frásögninni ekki af sniði bókarinnar, því síður heimildarþurrð, heldur af skorti höfundarins á nákvæmni og skilning á verki því, sem hann hefur tekizt á h endur. Ég skal nefna nokkur dæmi þessu til skýringar.

Í lýsingunni á sjóbúðunum í Skáladal á bls. 51 er t.d. ekki getið um stærð búðanna, ekki minnzt á birtugjafa, ekki lýst dyrum og dyraumbúnaði, ekkert orð um búðargólfin, ekki sagt frá gerð rúmstæðanna, ekki greint frá rúmfatnaði vermanna, þagað um það, hvar þeir höfðu sjóföt sín, þegar í landi var legið, o.fl. o.fl."

Ég var nýlega búinn að lesa þessa gagnrýni Þórbergs á Hornstrendingabók þegar ég gekk á Strýtu (1.456 m) í Eyjafirði. Á toppnum hugsaði ég til Þórbergs. Ég yrði að þramma á toppnum, sem var sléttur efst til að hafa allar lengdir frá norðri til suðurs og austur til vesturs á tæru í leiðarlýsingu minni á fjallgöngunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Palli kemurðu ekki með á Hvannadalshnjúk 26. apríl?

Gunnlaugur B Ólafsson, 12.3.2008 kl. 23:48

2 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Ertu með skipulagða ferð 26. apríl, Gunnlaugur?

Ég gæti endað á Hvannadalshnjúk ef úrslit í enska boltanum verða hagstæð. Vinni Arsenal deildina, þá geng ég á Hnjúkinn og flagga. Ég ætla alla vega að  ganga á Herðubreið í sumar.

Herðubreið (1682 m), einn formfegursti móbergsstapi landsins, myndaður við gos undir jökli. Uppganga á fjallið er erfið og hættuleg vegna grjóthruns. Herðubreið var fyrst klifin með vissu árið 1908. Það voru Þjóðverjinn, Dr. Hans Reck og Sigurður Sigurðarson frá Bitrugerði sem það afrek unnu.

Leggjarbrjótur á Þjóðhátíðardaginn.

Hekla á Jónsmessu

Torfajökull og Tungnafellsjökull

Sigurpáll Ingibergsson, 13.3.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 100
  • Frá upphafi: 226535

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband