Áhættumat í upplýsingatækni

"Heimurinn er fullur af hættum". Svo mælti Tumi engispretta við Gosa Jakobsson á leikfangaverkstæði Jakobs. En Gosi var að fikta í smíðaverkfærum föður síns og skapaði mikla slysahættu. 

Ég og Ari litli vorum að koma af leikritinu GOSI í Borgarleikhúsinu og minntu þessi orð Tuma mig á vinnu mína en gerð áhættumats í upplýsingatækni er í starfslýsingunni.

Daglega stöndum við frammi fyrir ákveðinni áhættu og heilbrigð skynsemi hjálpar okkur að taka skynsamar ákvarðanir á augabragði svo við komumst oftast ósködduð frá deginum. 

Þegar hlutirnir verða flóknari þá hafa verið þróaðar aðferðir til að meta áhættuna - Áhættumat.  Mat á áhættu er mikilvægur þáttur í allri ákvarðanatöku okkar.

Áhættumat er framkvæmt í mörgum greinum. Dæmi um nýlegt áhættumat í umhverfi er Urriðafossvirkjun. Meginniðurstaða áhættumats fyrir virkjunina er sú að bygging hennar leiðir ekki til aukinnar áhættu á svæðinu.  Fjármálastofnanir framkvæma áhættumat vegna útlána.  Áhættumat er lykilþáttur í vinnuvernd á vinnustöðum.  

Í upplýsingatækni er áhættumat mikilvægur hluti af upplýsingaöryggi.  Áhættumat er mat á ógnum sem steðja að upplýsingum og upplýsingavinnslu, áhrifum þeirra og viðkvæmni fyrir þeim og líkum á að þær gerist. Metin er hættan á því að óviðkomandi fái aðgang að upplýsingum, geti breytt upplýsingum eða skert öryggi þeirra að öðru leyti.

Áhættumat tekur einnig til athugunar á umfangi og afleiðingum hættunnar m.t.t. eðlis þeirra upplýsinga sem unnið er með. Markmið áhættumats er að skapa forsendur fyrir vali á öryggisráðstöfunum. Áhættumat skal endurskoða reglulega

Við hjá Stika gerum áhættumat með hugbúnaðinum RM Studio sem er þróaður hjá fyrirtækinu til að framkvæma áhættumat í samræmi við kröfur ISO/IEC 27001:2005.

RM Studio er leiðandi hugbúnaður í innleiðingu upplýsingaöryggis og hefur vakið verðskuldaða athygli hér á landi. Sókn er hafin á erlenda markaði, útrás heitir það öðru nafni.

Áhættufylki


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 117
  • Frá upphafi: 226444

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband