Skaftfellingameistarinn í HornafjarðarMANNA

Skaftfellingafélagið í Reykjavík hélt í kvöld átthagamót í HornafjarðarMANNA í Skaftfellingabúð. Keppt var um nafnbótina, Skaftfellingameistarinn. Albert Eymundsson, útbreiðslustjóri, driffjöður og tákngerfingur spilsins komst ekki frá Snæfellsjökli og því fékk ég, keppnisstjórinn í brids að spreyta mig í mótsstjórn.

Spilað var á fimm borðum, 15 skemmtilegir spilarar og voru spilaðar fjórar umferðir í undanúrslitum. Eftir glæsilegt kaffihlé hófst úrslitakeppnin en níu efstur spilarar unnu sér keppnisrétt.

Úrslitakeppnin gekk vel fyrir sig og kepptu Sædís Vigfúsdóttir, Ása Sæmundardóttir og Svavar M. Sigurjónsson úrslitaglímuna. Það var hörku rimma sem endaði með sigri Sædísar, eitt prik í plús. Ása var á núlli og Svavar minnsta mínus. Áhorfendur fylgdust vel með og lifðu sig vel inn í spilið og tóku andköf er menn vörðust eða sóttu vel.

Veitt voru góð bókarverðlaun. Jöklaveröld, listmálarabók og tvö bindi af Félagsvininum frá Öræfum fyrir það þriðja.  

Eftirminnilegt og skemmtielgt kvöld í Skaftfellingabúð og vonandi verður spilaður HornafjarðarMANNI að ári. Útbreiðslan gengur vel og spilinu vex fiskur um hrygg. Það er gaman að heyra frá skólum sem taka upp spilakvöld í Manna. Þetta er einfalt spil með flott og einfalt keppniskerfi fyrir stóran hóp keppenda.  Einnig er spilið fjölskylduvænt og tengir kynslóðir auðveldlega saman.

IMG_6968

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Valdís frá Þórhamri, dómari, Svavar, Ása og sigurvegarinn Sædís í úrslitakeppninni. Leví Konráðsson fylgist vel með. 

IMG_6970


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 226387

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 92
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband