2.12.2022 | 17:44
Kláfar á Íslandi
Allir íslensku kláfarnir sem til eru, eru yfir fljót. Engir eru til að ferja ferðamenn upp á fjöll. Íslendingar hafa meira talað um að byggja kláfa heldur en að framkvæma. En áhugaverðar hugmyndir eru á prjónum.
Þegar ég heimsótti Dólómíta og Gardavatn í júlí mánuði þá upplifði ég þróað samgöngukerfi með kláfum og voru þeir vel nýttir til að koma ferðamönnum á "erfiða" staði og þroskuð skálamenning tók við. Allt mjög snyrtilegt og mikil fagmennska.
Ég ferðaðist með kláfum til: Mt. Baldo við Gardavatn, hækkun: einn Eyjafjallajökull. Efra Breiðholt Bolzano, hluti af Borgarlínu bæjarins. Seizer Alm hásléttan og um Rósagarðinn í Dólómítunum. Sjá myndir á þræðinum Brýr og kláfar á Íslandi og víðar.
Skoðaði þróun á Íslandi. Í fjölmiðlum er fyrst minnst á kláf 1874 yfir vestari Jökulsá í Skagafirði. Næst er hugmynd um kláf á Skálafellsjökli 1990. Síðan upp í Klif í Vestmannaeyjum 1996. Kláfur í Hlíðarfjall 1998 og kláfur upp í Bolafjalli 2006.
Fjórar hugmyndir sem unnið hefur verið með hafa birst sótt um byggingarleyfi. En svo kom heimsfaraldur og allt stopp eða hvað?
2022 - Esjuferja - Hugmyndir lagaðar fram á ný
2021 - Eyrarfjall á Ísafirði - 45 manns í kláf
2018 - Skálafell: Panorama - Skíði og norðurljós
2017 - Kláfur á topp Hlíðarfjalls - Hlíðarhryggur ehf.
2015 - Esjuferja ehf sótti um að setja upp kláf á Esjuna, tekur 80 manns í ferð. Kostnaður 3 milljarðar þá. Hafnað af Hverfisráði Kjalarness
2014 - Rannsóknir - Vindmælir á Esju
2012 - Kláfur á Kistufell 2012, draumur
Persónulega tel ég að kláfur og fjallahótel á Skálafelli og Hlíðarfjalli gæti gengið því hægt að nýta allt árið. Ísafjörður og Esjan eru erfiðari nema rekstraraðilar eigi ás í erminni.
Fjallaskáli eða fjallahótel þarf að vera á endastöðinni og þá geta ferðamenn notið útsýnis, farið í gönguferðir, gengið, hlaupið, hjólað eða skíðað niður fjallið. Einnig getur áhugafólk um hverskonar svifflug nýtt kláfferjuna. Norðurljósa- og stjörnuskoðun er möguleg og í góðum veitingasal er hægt að halda allskonar veislur á stórbrotnum stað. Hér er komin stórgóð viðbót við ferðaþjónustu.
Ég hvet til umræðu um byggingu kláfferja upp á fjöll. Þær hafa umtalsverð umhverfisáhrif og starfsemin sem upp sprettur í kringum samgöngubótina þarf að vera sjálfbær. Virðist vera fyrirstaða hjá yfirvöldum en raflínur eru ofanjarðar og skapa mikla sjónmengun. Kláfferjur eru afturkræfar framkvæmdir.
Björgunarþyrla þarf að æfa björgun úr kláf því kláfferja getur bilað eða stoppað. Íslenskt stormveður lokar fyrir samgöngur og þoka getur dregið úr ferðaáhuga. Því þarf að gera áætlanir með þetta í huga.
Suður-Týrol var eitt fátækasta ríki Evrópu fyrir stríð, svipað og Ísland. Eftir stríð þá breyttist allt. Kláfar voru notaðar þegar verja þurfti fjallaskörð og þegar stríðinu lauk, þá var hægt að nýta þá til að ferja ferðamenn upp á hæstu sléttur og tinda til að skíða eða njóta fegurðarinnar.
Við eigum að geta lært helling af Týról- og Alpabúum.
Mynd af samgöngum og gönguleiðum í Rósagarðinum sem er á Heimsminjaskrá UNESCO. Samanstendur af kláfferjum og skíðalyftum.
Hugmyndir um ferju á Esjuna lagðar fram á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Samgöngur | Aukaflokkar: Dægurmál, Ferðalög, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:03 | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 233593
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
.Á 19. öld og lengur voru Fljótsdælir í fararbroddi í félagslífi og framkvæmdum, settu m.a. upp strengi til að flytja hey af fjöllum niður brattar hlíðar Fljótsdals.,
Má ekki telja þetta vera kláf
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 3.12.2022 kl. 18:45
Sæll Hallgrímur Hrafn Gíslason. Jú, rétt. Í hinu ágæta tímariti Glettingi er saga kláfa á Jökuldal gerð góð skil. Í 1. tbl. Glettings 2002 er grein - Kláfar á Jökulsá á Dal, eftir Stefán Aðalsteinsson. En Jökuldælingar eru hetjur kláfanna á Íslandi.
Sigurpáll Ingibergsson, 4.12.2022 kl. 13:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.