8.10.2016 | 13:06
Vindmyllur við Þykkvabæ
Það var áhugaverð aðkoma að Þykkvabæ. Sjálfbær ímynd sem hrífur mann og færist yfir á kartöfluþorpið. Rafmagnið sem myllurnar framleiða er selt inn á kerfi Orku náttúrunnar. Nú vilja Biokraft eigendur vindmyllnanna fjölga myllum og búa til vindmyllugarð. Íbúar Þykkvabæjar eru á móti. Sjónmengun og hljóðmengun eru þeirra helstu rök, þeir vilja búa í sveit en ekki í raforkuveri.
Framleiðslan á að geta fullnægt raforkuþörf um þúsund heimila. Samanlagt afl þeirra 1,2 megavött og áætluð framleiðsla allt að þrjár gígavattstundir á ári.
Mér fannst töff að sjá vindmyllurnar tvær. Við þurfum að nýta öll tækifæri til að framleiða endurnýjanlega orku.
Vindmyllurnar tvær eru danskar, af tegundinni Vestas. Þeir eru festir á 53 metra háa turna. Það þýðir að í hæstu stöðu er hvor mylla liðlega 70 metra há, eða jafnhá Hallgrímskirkju.
Meginflokkur: Umhverfismál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Tölvur og tækni, Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sigurpáll. Vindmyllur raska ekki óstýrilátu gosólgunnar truflunum undir jarðskorpunni, og það er mikill kostur. Þess vegna eru vindmyllur réttlætanlegar að mínu mati. En, einungis mínu mati sem ekki er vísindalegt ná Háskólastimplað og marktæknalega viðurkennt. Ég er bara ómarktæk kerling út í bæ.
En ég (þessi ómartæka kerling útí bæ), vil fá að vita hvort Bretar ætli að flytja alla þessa vindmylluorku úr landi, og láta skrælingja þessa kaupmáttar-launasviknu landsins þræla borga okurpening fyrir orkuna á þrælaeyjunni launaréttindalausu: ÍSLANDI?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.10.2016 kl. 23:26
Sæl Anna Sigríður!
Þykkvabæingar hafa einnig áhyggjur af því að raforkuverð hækki. Telja að þetta sé dýr framkvæmd og dýr orka þar sem líftími myllnanna er svo stuttur og rekstrarkostnaður hár. Veit ekki hvað þeir hafa fyrir sér í því.
Eftir BREXIT er rafmagnskapall milli Íslands og Bretlands enn fjarlægri.
Sigurpáll Ingibergsson, 9.10.2016 kl. 00:03
Hér er innlegg í umræðuna, Beislum vindinn eftir Þorbjörn Þórðarson á Fréttablaðinu.
http://www.visir.is/beislum-vindinn/article/2016161019871
Sigurpáll Ingibergsson, 12.10.2016 kl. 11:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.