Brunnfell (517 m)

Vefurinn peakery.com segir Brunnfell í Bárðardal vera 464 metra hátt og 1.245 hæsta fjall landsins. Taka ber þessum tölum með miklum fyrirvara.

Á annan í Hvítasunnu var gengin átthagaferð frá Lundarbrekku og stefnan tekin á Brunnfell. Þaðan gengið vestan megin Brunnvatns til baka.  Veður var frekar óhagstætt fyrir útsýnisgöngu, úrkoma og þoka enda versta vor síðan 1983 á norðausturlandi. Síðar átti eftir að koma í ljós að kaldasti júní síðan 1952 var upp runninn.

Bárðardalur er með lengstu byggðadölum landsins, 45 km. Fremur þröngur en grunnur. Vesturfjöllin blágrýtisfjöll hæst 750 m, en austan ávöl heiði, Fljótsheiði, hæst 528 m.
Eftir dalbotninum hefur runnið hraun, kvísl úr Ódáðahrauni og fellur Skjálfandafljót í því. Bárðardalur hefur orðið til við sig, þegar blágrýtishella landsins brast. Tveir glæsilegir fossar eru í dalnum, Aldeyjarfoss er efst en Goðafoss neðst.

Annað fell, Kálfborgarárfell (528 m) hæsti punktur Fljótsheiðar, er austan við Brunnfell og handan þess er Kálfborgarárvatn.  Nafnið er komið

Dagsetning: 13. júní 2011
Hæð: Brunnfell, 517 metrar
Hæð í göngubyrjun: Lundarbrekka, 241 m.   (N: 65.27.494 - W: 17.23.630)
Hækkun:  276 metrar         
Heildargöngutími: 120 mínútur  (9:00 - 11:00)
Erfiðleikastig: 1 skór
Þátttakendur: Skál(m), norðurlandsdeild, 5 þátttakendur   
GSM samband:  Já 

Gönguleiðalýsing:  Brunnfellið er hrjóstrugt og stamt undir fót.


Facebook staða:
frábær ganga upp frá Lundarbrekku, Vallmór, Dalirnir, Gildrumelur, Urðarfótur, Klappadalir og Klappadalaklauf, Brunnfell, Fagrahlíð og Fögruhlíðabörð, Brunnvatn, Klofvarða o. fl. rifjað upp á góðri en votri göngu í morgun, takk fyrir skemmtilega göngu ferðafélagar!

Brunnfell

Við skafl á Brunnfelli, 13. júní. Skaflinn er skreyttur ösku úr Grímsvatnagosi sem hófst 21. maí.

Heimildir:
Landið þitt Ísland, Örn og Örlygur1980-1984
Vegahandbókin, Örn og Örlygur 1996

http://www.vatnajokull.com/Drangajokull/Sumar2002.htm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 99
  • Frá upphafi: 226384

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 89
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband