Pub Quiz

Skellti mér í vikulokin á spurnigakeppnina - Drekktu betur.  Hann var vel skipaður bjórbekkurinn á Galleri-Bar 46.  Spyrill dagsins var blaðamaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé. Var hann með mikla breidd í spurningaflórunni. Allt frá nýliðnum atburðum sem gerðust í morgun og langt fram í aldir.

Meðal keppenda voru þekktir Gettu betur, Útsvarsmenn og ofvitar. Einnig krimma- og spurningahöfundar og áhugafólk um bjór og spurningar.

Okkur Stefáni gekk bærilega, vorum með gott meðalskor og gátum bjórspurninguna, þá átjándu. Hún var um sterkasta bjór í heimi. Spurt var hversu sterkur hann væri? Við félagarnir hittum á laukrétta tölu en skekkjumörk voru gefin og þau rúm.

Kolbeinn spurði 30 spurninga og skrifa keppendur svörin á blað. Tveir keppendur eru í liði. Þegar spurningum lýkur, þá skiptast lið á svarblöðum og gefa fyrir.  Hæsta skor var 24 rétt svör og er það stórkostlegur árangur.

Þetta er stórskemmtilegt efni og mikil menning. Ég á örugglega eftir að kíkja þarna oftar í framtíðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Drekktu betur byrjaði á sínum tíma á Grandrokk og ég hélt raunar að þar væri þetta enn. Kolli var jú einn af frumkvöðlum þessa að mig minnir.   Ég var svo frægur að vera spyrill þar í einhver skipti auk þess að vinna í ein tvö skipti.  Það eru þó um fimm ár síðan og ég hef búið úti á landi síðan. Er Grandrokk kannski farið á vit feðranna?

Jón Steinar Ragnarsson, 12.3.2010 kl. 22:16

2 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Sæll Jón!

Stemmir, þetta var 357. keppnin sem haldin var í gærkveldi. Grandrokk var víst sagt upp leigu um mánðarmótin og því er engin starfsemi á þeim sögufræga stað.

Til lukku með sigrana tvo. Gaman að heyra frá reynslubolta og spyrli.

Sigurpáll Ingibergsson, 13.3.2010 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband