Lokum Straumsvík

Það var gaman að heyra í Gísla Hjálmtýssyni í Silfri Egils í hádeginu. Þar fór hann yfir athyglisverða grein sem hann skrifaði í Fréttablaðið í byrjun febrúar, Virkjum ódýrt - lokum Straumsvík.

Þetta er djarft en þarft útspil hjá Gísla svona rétt fyrir fyrirhugaða stækkunarkosningu hjá Alcan. Rökin er góð. Skelfilegt að fá aðeins 2 sent fyrir kílóvattstundina í stað 6-7 senta sem gætu fengist með því að breyta álverinu í miðstöð nýsköpunar fyrir orkutengda starfsemi. 

Það er laukrétt sem kom fram í viðtalinu í Silfrinu að virkjun og bygging álvers fyrir nær hálfri öld var nauðsynleg og góð ákvörðun fyrir Ísland en í dag eru stórvirkjanir fyrir álbræðslur stórkostleg tímaskekkja. Það er margt sem álverið í Straumsvík hefur gert gott. Til dæmis frumherjar í gæðamálum og verið í forystu í þeim málum hér á landi.

Ef áform um álver standa. Nýtt álver í Helguvík. Nýtt álver á Bakka og stækkun í Hafnarfirði, þá verður næsta kreppa sem við göngum í gengum álkreppa!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

Ætlaði að fara að tjá mig um þessa hugmynd sem virðist falla í góðan jarðveg hjá þér og einhverjum fleirum. En mér fallast hendur.  Velti fyrir mér hversu neðarlega við þurfum að fara áður en umræðan fer að fjalla um uppbyggingu í stað niðurrifs.

Tryggvi L. Skjaldarson, 15.2.2010 kl. 22:35

2 identicon

Ég skil ekki af hverju Gísli vildi endilega rífa álverið til að byggja eitthvað annað í staðin.  Það er nægjanlegt pláss í Straumsvík fyrir alls konar starfssemi og álverið útlokar ekkert.  Það er hreinlega gert ráð fyrir því í skipulagi.  Gísli ætti að gera eitthvað þarfara en að bulla í beinni og fara með tómar rangfærslur.

Guðlaugur (IP-tala skráð) 16.2.2010 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 99
  • Frá upphafi: 226472

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband