Emmanuel Eboue

Hinn 25 ára Fílabeinsstrendingur, Emmanuel Ebue kom til Arsenal frá belgíska félaginu Beveren í janúarglugganum í janúar 2005. Hann fór strax í byrjunarliðið í bikarleik gegn Stoke City.  Þar var hann í hægri bakvarðarstöðu og stóð sig vel. Kamerúninn Lauren hafði varið hægri vænginn en var farinn að lýjast og leysti Eboue varnarhlutverkið vel.  Þegar hinn öflugi Bacary Sagna kom  til Arsenal á síðasta tímabili var Eboue, leikmaðurinn sem ber númerið 27 á keppnistreyjunni, færður fram á völlinn. Hann átti að fylla skarð Freddie Ljungberg.

Ekki eru allir sáttir við Fílabeinstrendinginn um þessar mundir. Sumum finnst hann of slakur leikmaður til að spila í Arsenalbúningi. Þegar hann er á miðjunni skilar hann góðri varnarvinnu og á oft góða spretti. Það sem hins vegar skilur hann frá Ljugberg er að ógnunin er engin í markaskorun.  Í 122 leikjum hafa aðeins þrjú mörk litið dagsins ljós. Einnig hefur Manu verið harðlega gagnrýndur fyrir að detta fyrir litlar sakir. 

Manu spilaði úrslitaleik Meistardeildarinnar á móti Barcelona í maí 2006 og einnig sýndi hann það hversu mikið í hann er spunnið í heimaleik á móti þáverandi Evrópumeisturum AC Milan í byrjun árs. Manu var úti um allt á hægri kantinum, bæði í sókn og vörn. Ítalarnir féllu.

Í síðasta leik á móti Wigan á Emirates kom Eboue inn á eftir hálftíma leik og var settur út á vinstri kant. Þar fann hann fann sig ekki vel og var skipt útaf er fjórar mínútur lifðu leiks. Þá baulaði Emirates. Það var ódrengilegt. Þetta hefði ekki gerst á Highbury segja harðir Arsenalmenn. Þar voru 38.000 gallharðir stuðningsmenn sem stóðu með sínum mönnum í gegnum súrt og sætt. Nú eru 20.000 nýir óþroskaðir stuðningsmenn, aldir upp við verðbréfabrask og þekkja ekki gömlu góðu gildin.

Besta ráðið er að láta Eboue hefja mikilvægan Evrópuleik á móti Porto og hefja þar með endurfæðingu hans í hið unga lið Arsenal.
mbl.is Wenger treystir á Eboue gegn Porto
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 93
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband