3.11.2008 | 22:53
WHERE IN THE WORLD IS OSAMA BIN LADEN? ***
Fór í kvöld, svona rétt fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum, á heimildarmyndina
"Where in the world is Osama Bin Laden?", eftir hamborgaraætuna Morgan Spurlock.
Það var áhugavert ferðalag sem okkur var boðið upp í um múslimalöndin Egyptaland, Marokkó, Jórdaníu, Palestínu, Ísrael, Saudi-Arabíu, Afganistan og Pakistan. Fólk var tekið tali í öllum löndum og spurt um hryðjuverkastríðið hvar OBL héldi sig. Fæstir vissu svarið. Flestum var illa við hann. Niðurstaða myndarinnar var sú að þótt hann næðist breyttist ástandið ekkert. Viðmælendur voru á því að það væri margt gott fólk í Bandaríkjunum en þeir hefðu yfir sér hræðilega ríkisstjórn með skelfilega utanríkisstefnu. Vonandi verða breytingar á morgun.
Áhrifaríkasta senan var þó við aðskilnaðarmúrinn í Palestínu. Þar stóð málað með rauðum stöfum á vegginn, "I'am not a terrorist", en allt í einu áttaði ég mig á því að við Íslendingar erum skilgreindir hryðjuverkamenn.
Spurlock er hress náungi og fléttar ferðalag sitt skemmtilega saman við meðgöngu frumburðar síns og fáum en hann er að reyna að búa til betri heim fyrir hann. Niðurstaðan er sú að allir eru að berjast fyrir því sama, bjartari framtíð fyrir börnin sín. Koma þeim til mennta svo þau eigi von. Engu máli skiptir hvort foreldrar búi í Bandaríkjunum eða Afganistan.
Meginflokkur: Kvikmyndir | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.11.2008 kl. 11:46 | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 3
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 233602
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður kvikmyndapistill en það var þetta með múrinn, gæti verið að hægt sé að nota eitthvað af granítinu og gabbróinu í Borgartúninu í svona múr hér heima ? Eftir nýjustu fréttum fer að verða full þörf á múr og með svipuðum áletrunum. Er víst að breskum hafi verið allsvarnað að grípa til þessara laga sinna ef siðferðið hefur verið á álíkan hátt og með jafn fortakslausum mismununum sem afskriftirnar dæmalausu bera með sér ?
Jóhannes Einarsson, 5.11.2008 kl. 14:16
Satt segir þú Jóhannes.
Í þessu tilefni má ég til með að læða vísu sem ég fékk í tölupósti e. H.F.
Okkar hagur heldur skánar
Heimurinn mun fatta senn
að Íslendingar eru bjánar
en ekki hryðjuverkamenn.
Sigurpáll Ingibergsson, 6.11.2008 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.