Krossfjöll

Eftir að hafa tekið daginn snemma með handboltaleik Íslands og Póllands var farið í góða veðrinu í dag á Krossfjöll með Útivistarræktinni.  Ekið var austur í Þrengsli, fram hjá Litla-Sandfelli sem er lítill fjallshnúkur á hægri hönd rétt hjá Geitafelli. Mosavaxin Krossfjöll eru lítt áberandi frá vegi séð enda rísa þau ekki hátt yfir umhverfið en það var vel þess virði að kynnast þeim. Nafnið er talið þannig til komið að þau mynda kross. Vegalengd 5 km. Hækkun 100 m.

Mosavaxin Krossfjöll eru flöt og var gengið á marga tinda. Gönguhópurinn var fjölmennur, 43 garpar. Gönguland ekki gott undir fót en mikið af berjum sem stoppaði fólk. Þegar toppnum var náð eftir 2,5 km göngu og 285 m sáust á einum hæðamæli, var haldið í hringferð.  Útsýni var ágætt af fjallinu og var gaman að horfa yfir helluhraunið sem var á milli okkar og Geitarfells (509 m).  Haldið var að Breiðabólstaðarseli eftir matarstopp og sáust tóftir af þrem húsum. En þar voru fráfærur, lömb skilin frá rollu og þær mjólkaðar og unnið smjör. Það var gaman að hverfa svo langt aftur í tímann. Mikið af bláberjum og aðalbláberjum var í hlíðinni fyrir ofan selið og var mikið innbyrt.   Á leiðinn að bílum heyrðum við skothvelli í kyrrðinni, gæsaveiðitímabilið hafið.

Krossfjoll-200808

Mynd í Goole Earth. Krossfjöll eru við Þrengslaveginn. Geitafell er lengst til vinstri, síðan kemur Litla-Sandfell, svarti bletturinn. Ölfusá er yst til hægri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 226704

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 91
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband