Flúðir og Hvítá

Hún var góð síðasta helgi. Haldið var á Flúðir með samstarfsfélögum og björt framtíðin rædd. Aðkoman að Flúðum var glæsileg. Við keyrðum upp þjóðveg númer 30 í þokumóðu og hálfnakin tignarleg trén sem búið er að planta meðfram veginum voru stórglæsileg. Maður þarf að fara aftur í sumar þegar laufblöðin verða komin á greinarnar. Frábært framtak hjá Flúðamönnum og mættu fleiri taka þá sér til fyrirmyndar. Þegar komið var á Hótel Flúðir tók á móti okkur listaverkasýning eftir Tolla, meistara landslagmyndanna. Mér leið mjög vel á milli jöklamyndanna hans og grænmetisins sem vex á Flúðum. Það var góður andi á svæðinu er myndaði mikið og öflugt hugarflug.

Tolli-jokull

 Höfsjökull - Mynd eftir Tolla á Flúðum, hafði hana í öndvegi yfir hugarflugi. Steinarnir í forgrunni koma fyrir á mörgum myndum og mynd flottan stíl hjá listamanninum. Litiasamsetningin er styrkur Tolla, skærir og töfrandi litir.

Eftir árangursríkar stundir á Flúðum var halið í flúðirnar í Hvíta. Komið var við á Drumbodsstöðum í Biskupstungum. Það var súrrealískt að koma þangað. Gengið var inn í hlöðu sem búið var að umbreyta í skemmtilega aðstöðu fyrir bátafólk. Bátafólkið sem kunni vel sitt fag var skemmtilega hippalegt í útliti. Eftir að hafa skipt yfir í blautbúninga var haldið í jökullitaða Hvítá á stórkostlegri dæmigerði gamalli amerískri rútu. Þetta var eitthvað svo öðruvísi. Skemmtileg umgjörð hjá Arctic rafting. Þetta var mjög eftirminnileg ferð. 

Áður en haldið var í svaðilförina var góð kynning á siglingarreglum. T-gripið kennt og farið yfir helstu galdra flúðasiglinga. Fjörið var mest í byrjun ferðar og hver flúðin á eftir annarri var afgreidd. Þær hétu skemmtilegum og ógnarlegum nöfnum sem áttu að hreyfa við okkur. Með í ferðinni voru efnilegir krakkar úr 10. bekk Breiðholtsskóla. Þau stóðu sig mjög vel og héldu uppi fjörinu. 

Á miðri leið var stoppað og þeir sem vildu gátu hoppað niður úr rúmlega fjögurra metra hæð í kalda Hvítá.  Það var mikil áskorun og hápunktur ferðarinnar fyrir marga. Ég, hokinn af reynslu áranna sleppti þessari áskorun. Ég var ekki nógu vel útbúinn. Mikilvæg vika framundan og öngvir sjensar teknir.

 Hvita-oryggi

Hvita-rutur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 94
  • Frá upphafi: 226696

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband