Færsluflokkur: Bloggar

Baggalútur - svarar fyrir Impreglio

Þeir eru magnaðir Baggalútsmenn. Ég veltist um af hlátri eftir að hafa lesið fréttina um Impreglio

"Verktakafyrirtækið Impreglio hefur vísað öllum ásökunum um mengun og slæman aðbúnað starfsmanna í Kárahnjúkagöngum á bug.

Í fréttatilkynningunni segir að fáeinir starfsmenn hafi fengið vægan hiksta eftir að hafa borðað yfir sig af styrjuhrognum og kampavíni, sem alltaf er í boði í hádeginu í göngunum.

Þá er umfjöllun fjölmiðla af eitugufum í göngunum sögð afar villandi; aðeins hafi verið um að ræða smávægilega lögg af sterku húsgagnabóni sem hafi farið til spillis þegar verið var að bóna áhöld og vélar eftir langan vinnudag - auk þess sem kviknað hafi smávægilega í út frá straujárni þegar verið var að strauja og þvo vinnuklæðnað við sama tækifæri."

Myndin sem fylgdi fréttinni er einnig mjög skondin og dæmi um hvernig hægt er að fara með sannleikann.

http://www.baggalutur.is/index.php?id=3800 


Skynsöm kona

Mjög gott val hjá drottningunni.
Því má við bæta að sonasonur hennar er harður Nalli.

Ekki furða þótt Peter Hill-Wood vilji ekki láta ríkan Kana eignast knattspyrnufélagið með söguna merkilegu.  Hann vill halda í góð  ensk gildi. 


 


mbl.is Drottningin heldur með Arsenal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norður-Íshaf er hið eiginlega Miðjarðarhaf

Svo mælti Vilhjálmur Stefánsson (1879-1962), landkönnuður og mannfræðingur.

Íshafsleiðin, “Norðausturleiðin”, (The Northern Sea Route) liggur á milli Norður-Atlantshafs og Kyrrahafs. Án hafíss væri þessi stysta leið milli heimshafanna tveggja fjölfarnasta siglingaleið jarðar!

Ísland, Hong Kong norðursins

Vegna legu landsins á miðju Atlanshafi milli Evrópu og Ameríku skapast miklir möguleikar á að gera Ísland að öflugri umskipunarhöfn – Hong Kong norðursins, sérstaklega er horft til austurstrandar Bandaríkjanna. Einnig er hægt að aðstoða Rússa við að koma vörum sínum á markað, t.d. olíu, timbri og málmum. Í þessu sambandi hefur verði rætt um olíuhreinsunarstöð m.a. í Reyðarfirði og Skagafirði. Áhugi stjórnvalda verið lítill. Þau hafa frekar veðjað á áliðnaðinn með öllum þeim ruðningsáhrifum sem hann hefur.

Umskipunarhöfn 

Íshafsleiðin, eða siglingaleiðin milli Evrópu og Asíu norðan Rússlands var fyrst farin af rússneska skipinu Alexander Sibiryakov árið 1932. Frá Íslandi er þessi siglingaleið til Tokyo innan við 7000 sjómílur (18-20 dagar), en ef farið er um Suezskurðinn er hún um 12,500 sjómílur (34-36 daga sigling). Umtalsverð ísbráð á norðurslóðum, framfarir í siglingatækni og skipasmíðum áundanförnum árum hafa gert það að verkum að þessi leið er nú fær lengur og lengur á hverju ári, þrjá til fjóra mánuði. Auk verulega styttri siglingaleiðar milli Íslands og Japan þá liggja að þessari leið landsvæði sem eru mjög rík að hráefnum sem Íslendingar gætu hugsanlega aðstoðað við að koma á markað. Þessi leið er einnig mjög áhugaverð fyrir ferðamenn. Hér kann því að vera umtalsvert sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki og vísindamenn.

Stefnt er að því að á árunum 2008-2010 verði flutt 10 milljón tonn um Íshafsleiðina og þó um Ísland færi ekki nema 5-10% af því þá yrði um gífurlega mikla flutninga að ræða.

Það hefur verið gaman að fylgjast með umræðunni um olíuhreinsunarhöfn á Vestfjörðum.  Þetta er aðeins fyrsti kafli í mögnuðm sóknartækifærum Íslendinga til að byggja upp öfluga atvinnu á landinu.

Ef vel tekst til á næstunni, þá gæti heimsýn okkar orðið eins og meðfylgjandi mynd sýnir.

Ishaf


Mr. Bean á Humarhátíð?

 

Rowan Atkinson í hlutverki Mr. Bean er snillingur. Ég fór með Ara litla á grín- og fjölskyldumyndina Mr. Bean's Holiday á Akureyri um páskana. Þetta er fín fjölskyldumynd, einfaldur söguþráður og mörg spaugileg atvik sem allir skilja.  Mr. Bean minnir mig á Chaplin, en hann talar lítið, notar andlitið og líkamann til að tjá sig.

Einnig er myndin góð forvörn fyrir komandi sumarfrí, þana er hægt að sjá hvað þarf að varast í ókunnum löndum.

Í stuttu máli fjallar myndin um einfarann Mr. Bean. Hann vinnur ferðavinning í happdrætti til Cannes á frönsku Ríverunni. Vandamál hans er að komast þangað. Einfalt ferðalag í lest en er snúið fyrir  fólk sem er með heila á stærð við hænuheila.

Eitt frábært atriði tengdi mig við Hornafjörð. En meistari Bean fer á fínan franskan veitingastað sem sérhæfir sig í sjávarréttum. Humar er þar í öndvegi, kanski upprunin úr humarhótelinu á Hornafirði. Útfærsla Bean á humaráti er stórmögnuð. Ég er að velta því fyrir mér hvort Humarhátíð um mánaðarmótin júní-júlí á Hornafirði geti ekki nýtt sér þetta í markaðsherferðinni.

Slóð á kynningu: http://www.beansholiday.com

Bean



56% álverssina sem kusu utankjörfundar

Skv. tölum sem voru að koma, þá hafa JÁ menn verið 56% í utankjörfundaratkvæðum.

Hagur Hafnarfjarðar hefur unnið þá heimavinnur betur! 


mbl.is Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utankjörfundartalningin verður spennandi

Glæsileg þátttkaka.

2.950 gegn 3.000 - vonandi eykst bilið þegar líður á kvöldið.

Óttast að Alcan hafi verið duglegri að smala í þessum 1.195 utankjörfundaratkvæðum. Þeir hafa meiri pening, meiri mannafla og meiri maskínu. 

Vinni NEI, þá hætti ég að segja og hlusta á Hafnarfjarðarbrandara.


mbl.is Fylkingar nánast jafnar samkvæmt fyrstu tölum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð áskorun

 

Þetta er spurning um ímynd þjóðarinnar, ekki sjálfsmynd hennar. Ímynd þjóðarinnar býður hnekki ef við höldum hvalveiðum áfram.

Við verðum að átta okkur á því að hagsmunir allra jarðarbúa liggja ekki í sjálfsákvörðunarréttinum heldur samákvörðunrréttinum. 

 

 


mbl.is Skora á stjórnvöld að hætta hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumalandið - rökræða

Ég var svo heppinn að vera á þessari sýningu.

Á útleið úr Hafnarfjarðaleikhúsinu veltum ég og Hilla systir því fyrir okkur hvort þetta hefði verið partur af leikritinu. Ég taldi að þetta væri partur af verkinu, aukaleikarinn fengi frítt inn en litla systir veðjaði á rétt. 

Mér fannst leikhópurinn taka þessu fagnandi, þau voru öll mjög einlæg í tilsvörum og greinilegt hvernig hjartað í þeim sló. Man að Sólveig Arnardóttir hoppaði hátt upp og hafði gaman af. 

Leikhús á að taka afstöðu. 

Leikhópurinn var ferskur og myndaði tengsl við áhorfendur. T.d. var einn áhorfandi allt í einu kominn í verkið þegar verið var að ræða um hönnun en viðkomandi var með glæsilegan hárkamb. Einnig var leikhópurinn upp í stúku þegar rokklag var sungið í byrjun síðari hálfleiks. Þau mynduðu fína stemmingu með því. 

Burt með álver úr bakgarðinum.


mbl.is Leikhúsgestur rökræddi við leikara í miðri sýningu á Draumalandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stærðfræðispurningar í Gettu betur

Til hamingju MH!

Gaman að sjá stúlkur í báðum liðum.  

Keppnin í kvöld náði ekki að vera spennandi vegna víðtækrar þekkingar úr Hamrahlíðinni. Verzt fannst mér að hvorugt lið gat stærðfræðidæmið um hver væri kvaðratrótin af 2 í 4ða veldi. Svarið er 4. Þetta er í annað sinn sem spökustu  menn ungu kynslóðarinnar klikka.  Annað skipit sem ég man eftir var í fyrsta leiknum en þá klikkuðu bæði lið á kvaðratrótinni af 400, en hún er að sjálfsögðu 20.

 Vonandi segir þetta ekki neitt um stærðfræðiþekkingu menntskælinga almennt en ungt fólk verður að kunna þessi fræði ætli Íslendingar að vera í fremstu röð í þekkingariðnaði.

Að lokum spái ég MR sigri, þeir eru mezta maskínan sem ég hef séð í keppninni í vetur.



mbl.is MH lagði ME í Gettu betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandsmeistari í Hornafjarðarmanna

HMÍ síðasta mánuði hlotnaðist mér sá heiður að verða krýndur Íslandsmeistari í Hornafjarðarmanna. Úrslitin voru spiluð fyrir Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu. Undankeppnin var haldin kvöldið áður á veitingastaðnum Heitt og Kalt.

Kíkjum á spilin í úrslitakeppninni.

Þú ert að spila HornafjarðarManna. Salurinn er að fyllast af Hornfirðingum sem eru að fara að blóta. Það er spenna í loftinu. Þú ert gjafari eftir að hafa dregið hjarta tvist en hann botnaði fjarka frá Höfðamanninum og sexu frá tengdadóttur Þinganess.

Ég er gjafari og fæ þessa hendi:
 s: xx
 h: Kxx
 t: xx
 l: AK1032

Forhönd, kaupir 6 spil og millihönd nýtir kvótann. Þetta lítur ekki nógu vel út.
Fékk úr Manna  tvo hunda í spaða, níu og sexu. Síðan fékk ég hjarta sexu og lauf tvist. 
Ekki var ég bjarsýnn þegar lagt var í þessa för. Forhöndin smellti út tígli, drottningunni. Djöfulinn, blótaði
ég enda á þorrablóti. Nú fæ ég í mesta lagi þrjá slagi og eitt prik í mínus ef heppnin verður með mér.

Hinn spilarinn drap á ás. Hélt áfram með kóng. Ég kastaði síðasta spaðanum
og huxaði með mér hví væri að spila ofan af tíglinum. Svo kom þriðji tígullin. Ég kastaði hjarta. Forhöndin kom svo með fjórða
tígulinn. Þau komin með tvo slagi hvor.

s:
h: K6
t:
l: AK10632

Nú kom lítið hjarta frá forhandarspilarnaum. Hjúkk, ekki spaði huxaði ég. Ég fæ
þá einhverntímann á hjarta kónginn. Lítið frá millihönd, mér brá.
Tók á kónginn. Lauf ás, síðan lauf kóngur. Drottning frá forhönd. ÆÆ
hann á gosann, sáttur með þrjá slagi á þessa hendi. Setti samt tíuna.
Allir renus!
Ég spilaði laufunum í botn og kom gúmískvís á þau. Hjarta sexan tryggði mér fjórða prikið í spilinu.

Næsta spil var nóló. Ég þoli ekki nóló og tjái mig ekki meira um það.

Síðasta spil var hjarta tromp. Ég í forhönd. Var með Ax í hjarta. K
eypti allan kvótann, sjö spil og fékk í hjarta KJxx. Þá leið mér
vel. Tólf slögum síðar var ég krýndur Íslandsmeistari í Hornafjarðamanna.

Því hefur verið haldið fram að Íslandsmót í Hornafjarðarmanna sé Íslandsmót í heppni. Ég er sammála því að heppni spilar stóran hlut. Mínir útreikningar segja 70% heppni en 30% tækni.  Ég skal útskýra það.

Kínverjar hneigjast til að nota tölur til að útskýra allt á milli himins og jarðar og forystumenn kommúnistaflokksins hafa reiknað það út að Maó hafi haft 70% rétt fyrir sér en 30% rangt.

Þannig fann ég þetta út! 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 234012

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband