Færsluflokkur: Bloggar
12.5.2007 | 21:14
32-31
Þetta gætu verið úrslit úr tvísýnum handboltaleik. En í þetta skiptið er ekki svo. Ég er að spá um úrslit kosninga í dag.
Rétt fyrir kl. 13 í dag kaus ég í Kópavogsskóla, fyrstu kjördeild og var atkvæði mitt það 99. í kjörkassann eða svo sögðu starfsmenn. Ég kýs alltaf. Það eru forréttindi að fá að kjósa. Það hafa svo margir látið lífið í gegnum tíðina svo ég geti kosið.
Kjörsókn er slakari en árið 2003 en tölurnar liggja niður á við. Það er að gerast út um allan heim. Samt eru kosningarnar í dag mjög tvísýnar.
En hver græðir í dag á lítilli kjörsókn. Stóru gömlu flokkarnir hagnast á því, kosningavélin malar inn atkvæðin hjá þeim.
Spáin mín er sú að stjórnin haldi velli 32-31 og hryggja þau úrslit mig. Ég spái því einnig að nýtt stjórnarmynstur verði í spilunum. Það mun taka þrjár vikur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að velja sætustu stúlkuna.
Minni kjörsókn í Reykjavík en í síðustu kosningum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.5.2007 | 21:50
Sigrar Íslandshreyfingin skoðanakannanir?
Nú er stóra spurningin hvort Íslandshreyfingin xI sigri skoðanakannanir. Í þessari könnun er hreyfingin með 1,9% en hjá Félagsvísindastofnun með 3,2%. Það hefur gengið illa að mæla nýja flokka og þeir komið betur út í stóru könnuninni heldur en skoðana.
Gott dæmi eru borgarstjórnarkosningar 2002. Flestar kannanir sýndu xF með Ólaf Magnússon í kringum 3% en kjósendur sögðu 6,1%. Það hafði meira að segja áhrif á kjörstjórn í talningarherberginu. Þegar fyrstu tölur voru birtar var atkvæðum xF haldið "leyndum" en þegar kjörseðlar voru kláraðir var ekki hægt að fela meira og kom í ljós að Ólafur var kominn í
borgarstjórn og því þurfti að vekja doktorinn!
Ég vona að xÍ fái 5,1% atkvæða, það væri gargandi snilld.
Fylgi Framsóknarflokks dalar á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.5.2007 | 18:22
… annars rísa 5 ný álver!
Fékk þetta skemmtilega skeyti í hólfið mitt áðan.
Sama hvar þú stendur í pólítík, þá er áhugavert að sjá þetta og m.a. áhugavert að sjá tilvitnanir í forstjóra Bakkavarar og Marels. Skoðaðu hug þinn vel áður en þú merkir við í kjörklefanum.
annars rísa 5 ný álver!
* Skjal á PDF formi:
* Skjal á PPS formi (power point sýning):
* Á vefnum:
Við minnum jafnframt á stórtónleikana GRÆN FRAMTÍÐ? í kvöld á Nasa við Austurvöll. Með því að mæta þangað sýnum við öll stuðning okkar við græna framtíð og andstöðu við frekari stóriðjuframkvæmdir, hvar í flokki sem við stöndum.
Nánari upplýsingar hér: http://framtidarlandid.is/tonleikar-2
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2007 | 10:06
Óvönduð könnun
Þetta er hrikalega óvönduð könnun hjá Blaðinu. Það liggja engin vísindi á bakvið niðurstöðuna. Þetta er froða. Vísindin efla alla dáð!
Sigurður Kári spilar með, það er lýsir ekki mikilli ábyrgð.
Í álverskosningu í Hafnarfirði var blaðið með tvær kannanir og þar var mælingin kolröng. Þeir mældu JÁ menn með yfirhöndina. En annað kom á daginn.
Þegar maður sér svona niðurstöðu, þá vakna spurningar um hvort við eigum ekki að fara að dæmi Frakka og banna skoðanakannanir viku eða tíu dögum fyrir kosningar. þarna er greinilega verið að spila með fólk.
Kjósum grænt, ekki grátt!
Ríkisstjórnin héldi velli skv. könnun Blaðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 17:48
Hornfirðingar í úrtaki
Capacent Gallup hefur hringt út á land í þessari könnun og hitt á nokkra Hornfirðinga. En 40% Hornfirðinga styðja Framsóknarflokkinn. Það er eini gallin við Hornafjörð.
Fylgi Framsóknarflokksins tekur stökk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2007 | 21:41
Kompás sýnir sukkið í fiskveiðistjórnunni
Afleiðingin af þessu, auknar skuldir útgerða og minni fiskstofnar. Hér þarf að breyta miklu, enda vitlaust gefið.
Þegar greindir og vel menntaðir menn jafnvel prestlærðir geta varið svona gallað kerfi og kallað fullkomnasta kerfi í heimi þá skil ég loks af hverju breyskir menn voru tilbúnir til að láta líf og limi fyrir hugsjónir, kenndar við nasisma og kommúnisma. Rök eru ekki tæk, heldur tilfinningin ein.
Ótrúlegt er að landsbyggðarfólk skuli kjósa yfir sig sömu vandamálin kosningar eftir kosningar. Árið 2007 eru alþingiskosningar og trúlega kjósa 2/3 Hornfirðinga stjórnarflokkana. Horfa síðan á launin lækka, húsin lækka í verði, börnin flytja burt, nágrannan pakka saman í gám og skilja eftir tómt hús. Þetta minnir óneitanlega á lömb á leið til slátrunar.
Þegar útópísk hugmynd svo sem að Íslendingar séu ein þjóð er draumsýnin ein, þá verður fólk í hinum dreifðu byggðum að snúa bökum saman.
Til að byggja aftur upp sjávarútveginn þarf að taka rannsóknir á atferli fiska, lífríki og fiskstofnum til rækilegrar endurskoðunar. Stórefla þarf rannsóknir, byggja upp meiri þekkingu og setja landgrunnið í umhverfismat og skilgreina alveg upp á nýtt með hvaða veiðarfærum fiskurinn er veiddur. Fara eftir niðurstöðum þó kvalarfullar kunni að verða. Stefna að því að bera af á þessu sviði og selja svo rannsóknarþekkingu út um allan heim. Vísindin efla alla dáð.
Hér meðfylgjandi er mynd sem tekin var í Þórhalli Daníelssyni SF-71 árið 1987. Við notuðum það í kosningabaráttunni í Suðrinu árið 2003, þá var maður Frjálslyndur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2007 | 13:23
Stigasekt
Finnist maðkur í mysunni, á skilyrðislaust að sekta bæði lið um tvö stig. Peningasektir duga ekkert. Burtu með leynisamninga og baktjaldamakk.
En Arsenal vinnur Chel$ky í dag og Júnætid verður meistari.
Rannsakað hvers vegna Howard lék ekki gegn United | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.5.2007 | 13:26
Óheppilega orðaðar auglýsingar
Kosningabaráttan er nú í algleymingi. Auglýsingahönnuðir þurfa að vanda sig. Mikið í húfi. Hér eru nokkrar óheppilega orðaðar auglýsingar.
1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill
Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr. 550, börn kr. 300.
2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.
3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.
4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það varanlega í höndunum.
5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.
6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.
7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.
8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar, kvenmann, til starfa.
9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.
10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar!
11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur..
12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2007 | 13:33
Árni Matt borðar humar eins og Mr. Bean
Árni Matt er öngvu skrárri en Mr. Bean þegar kemur að því að snæða humar!
Á fréttavefnum horn.is er mynd af fjármálaráðherranum að snapa atkvæði fyrir. Í leiðinni opnaði hann formlega Humarhótel á Höfn. Á skemmtilegri mynd á horn.is sést dýralæknirinn snæða humar í anda Mr. Bean. Það vantar ekki kosningahúmorinn. Ætli hann verði eins eftir kosningar?
Á myndinni á horn.is er Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2007 | 20:22
Dýrt framsóknaratkvæði
Það verður dýrt framsóknaratkvæðið sem Jónína Bjartmarz fiskaði fyrir tengdadóttur sína. En eflaust hefur hún farið að örvænta þegar skoðanakannanir sýndu pilsner fylgi við flokkin og gripið til þessara örþrifaráða.
Grein Hallgríms Helgasonar í Fréttablaðinu í dag er hárrétt.
"Framsóknarmenn hugsa fyrst um flokkinn, svo um landið. Fyrst um sjálfa sig svo um þjóðina."
Vona ég að Hornfirðingar hugsi sig tvisvar um áður en þeir kjósa þann 12. maí. Haldi ríkisstjórnin áfram völdum, þá fer íbúafjöldinn í firðinum að nálgast tvöþúsund.
Spilling áfram - ekkert stopp.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 234012
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar