Færsluflokkur: Bloggar
11.3.2007 | 09:58
Tækni og vit 2007
Stórsýning tileinkuð tækniþróun og þekkingariðnaði stendur nú yfir í Fífunni í Kópavogi. Þetta er glæsileg sýning sem undirstrikar það að þekkingariðnaðurinn á eftir að verða þriðja stoðin í hagkerfi Íslendinga.
Það hefur verið gaman að fylgjast með og vera þáttakandi í sýningarhaldi. Á fimmtudag kíkti ég á opnunarhátíðina og var þar góð stemming. Mest annríki var við bás Auðkennis enda voru þeir að afhenda gestum rafræn skilríki. Það er stemming fyrir þessari vöru núna enda uppskáru rafræn skilríki titilinn athyglisverðasta varan.
Stiki ehf, fyrirtækið sem ég vinn hjá var mjög farsælt um helgina. Á föstudag var Stiki eitt af fjórum fyrirtækjum sem fékk viðurkenningu fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækja. Hin sprotafyrirtækin voru Stjörnu-Oddi, Gagarín og Marorka sem hampaði Vaxtasprotanum.
Ég mætti ásamt nokkrum starfsmönnum Stika á föstudaginn niður í Gerðuberg en Jón Sigurðsson viðskipta- og iðnaðarráðherra afhenti Vaxtarsprotann. Gott framtak hjá Samtökum iðnaðarins, Rannsóknamiðstöð Íslands og Háskólans í Reykjavík en þau standa á bakvið viðurkenninguna.
Stiki var með í sprotabás Samtaka iðnaðarins og hlaut sá bás verðlaun fyrir athyglisverðasta sýningarsvæðið á Tækni og vit 2007. Sýningarsvæði Samtaka iðnaðarins kallast Sprotatorg og er gróandinn þar í fyrirrúmi.
Góð helgi hjá Stika ehf.
Bloggar | Breytt 12.3.2007 kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.3.2007 | 20:57
Kongungsvegurinn - dýrasta framkvæmd Íslandssögunnar
Í dag gekk ég fyrsta hluta Konungsvegarins ásamt 67 röskum göngumönnum frá Útivist. Þetta er raðganga í sjö áföngum. Í sumar eru liðin 100 ár frá Íslandsferð Friðriks VIII Danakonungs ásamt 200 manna fylgdarliði. Aldrei fyrr hafði verið haft jafn mikið við vegna komu erlendra gesta enda sjálfur þjóðhöfðingi Íslendinga á ferð. Útivist minnist heimsóknarinnar með raðgöngu og Ferðafélag Íslands með fornbílaferð 16. júní.
Aldargangan hófst við Árbæ við Elliðaá í kl. 11 upp Elliðaárdal, framhjá Árbæjarkirkju um Rauðhóla yfir Geitháls upp Mosfellsheiði, framhjá Miðdal og endaði við Djúpadal en hann var ekki djúpur. Göngunni lauk kl. 15.30 og voru 15,7 kílómetrar að baki í sluddkenndu veðri. Friðrik og félagar höfðu brunch í Djúpadal á leið til Þingvalla. Farastóri var Sigurður Jóhnsson og hafði hann hannað merki, skeifa með kórónu og stóð á henni F Rex VIII. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem ferð fær eigið merki. Frábært framtak en þetta er þó til í þróuðum göngulöndum í nágrenni.
Göngurhópurinn var röskur og kláraði verkefnið á góðum tíma. Á heimleiðnni var keyrt eftir Suðurlandsbraut, niður Hverfisgötu og framhjá Lærða skólanum en þar hófu konungur og fylgdarlið ferðina 1. ágúst 1907. Meðalhraðinn var 4,5 km á klukkustund og er það mjög góður hraði sé miðað við stærð hópsins. Hér eru helztu punkar út GPS tæki mínu.
Árbær.......: 64.07.160 - 021.50.177 23 m (kl. 11.00)
Rauðhólar: 64.05.725 - 021.45.686 86 m (kl. 13.00)
Geitháls...: 64.05.576 - 021.42.252 97 m (kl. 14.10 - 10,3 km)
Djúpidalur: 64.06.592 - 021 37.443 164 m (kl. 15.30 - 15.7 km)
Gísli Sigurðsson skrifaði um Kongungsveginn í árbók FÍ árið 1998. Hann kemur með skemmtilega sýn í framkvæmdina með því að bera kostnaðinn við tekjur landssjóðs.
En von var á Friðrik VIII konungi til landsins í ágúst 1907. Var afráðið að hann færi til Þingvalla, til Geysis og Gullfoss, suður hreppa, að Þjórsártúni og til Reykjavíkur.
Menn gerðu ráð fyrir því að konungurinn kysi að aka þessa leið í yfirbyggðri léttikerru fremur en að ferðast ríðandi. Það sýnir þó sambandsleysið við hátignina, að aldrei hefur verið spurt beinlínis að þessu. (*) Þarna sáu menn möguleika á að gera veg frá Þingvöllum að Geysi og út í Hreppa. Því var ráðist í vegaframkvæmdina 1906 og lauk fyrir komu konungs 1907 og hún kölluð Konungsvegurinn. Lög um landsreikning voru samþykkt fyrir árin 1906/07 í einu lagi og var kostnaður við vegabætur 220.257 krónur, stærsti hluti Konungsvegur en heildarútgjöld landssjóðs voru liðlega 3.1 milljón. Því var kostnaðurinn um 14% af ársútgjöldum ríkisins. Þessi framkvæmd er líklega dýrasta vegaframkvæmd sögunnar og í sama stærðarflokki ríkisábyrgð til Íslenskrar erfðagreiningar sem var til umræðu árið 2002.
Um konungskomuna var gefin út bók, en ekkert var minnst á vagnaveginn dýra. Kóngsvagninn var aðeins notaður til að flytja vistir, tjöld og drykkjarföng en kóngur ferðaðist ríðandi. Ekkert var minnst á dýrasta mannvirki landsins, Konungsveginn í frásögnum fjölmiðla!
Heimild:
(*) Árbók F.Í. 1998, bls. 73
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 234015
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar