31.10.2009 | 16:14
Sofandi Spurs
Á 43. mínútu, markamínútunni, sofnuðu þeir hins vegar á verðinum. Eflaust orðnir þreyttir á sífelldum hlaupum. Innkast, fyrirgjöf frá Sagna og maður leiksins, Robin van Persie með númerið 11, á réttum stað og fór illa með Kónginn í vörn Spurs. Eitt núll, ísinn brotinn.
Markamínútan er aðeins 60 sekúndur, rétt eins og aðrar mínútur en Fabregas náði eflaust að setja met. Sofandi leikmenn Spurs gáfu eftir boltann og frábært einstaklingsframtak fyrirliðans kom Arsenal í 2-0. Ellefu sekúndur á milli marka!
Þriðja markið var einnig merkilegt. Það er ekki oft sem menn sjá bakvörð stoppa í sókninni en Sagna hélt að leikurinn væri stopp eftir gróft leikbrot á Eduardo. Þetta óvænta stopp svæfði varnarmenn Spurs í þriðja skipti í leiknum.
Fyrir leikinn voru leikmenn Spurs með miklar yfirlýsingar, þeir eru eflaust sterkir leikmenn en liðsheildin er ekki í sama klassa og hjá nágrönnunum í Arsenal. Þeir eiga margt ólært í enska boltanum.
![]() |
Arsenal vann öruggan sigur á Tottenham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2009 | 20:39
Hvalfell (848 m)
"stunning, scenic, volcanic"
Er ekki eftirsóknarvert að búa í svona landi?
Þetta eru nokkur lýsingaroð sem erlendir ferðafélagarnir mínir notuðu um gönguferð á móbergsstapann Hvalfell um síðustu helgi. Það eru mikil lífsgæði að geta skroppið út í náttúruna og skorað frægt fell á hólm með litlum tilkostnaði.
Ég slóst í ferð með Gunnlaugi B. Ólafssyni ferðafrömuði og bloggvini með meiru á Hvalfell en hann hefur sett sér það markmið að gera úttekt á fellum og fjöllum í 100 km radíus frá höfuðborginni.
Það var fjölmennur alþjóðlegur hópur sem slóst í förina. Íslendingarnir voru 9, ættaðar víða af landinu en erlendir ferðafélagar voru 18. Flestir frá Spáni en Þjóðverjar, Austurríkismenn, Ítalir, Finnar og Hollendingar áttu sína fulltrúa. Megnið af þeim er að læra hér á landi, bæði jarðfræði og erfiða tungumálið okkar.
Lagt var af stað frá Stóra Botni og þegar hópurinn komst að því að símastaurinn yfir Botnsá var kominn í bönd, þá var haldið niður að brúnni yfir Botnsá og fylgt fyrstu metrunum að leiðinni yfir Leggjabrjót. Síðan var beygt af slóðanum og fundin hentug leið til að stikla yfir vatnslitla Hvalskarðsá. Þegar yfir ánna var komið, var ákveðið að halda öfuga leið að Hvalfelli, enda ferðina á að heimsækja Íslandsmeistarann í hæð fossa, Glym. Við héldum því beint á fellið, upp Ásmundartungu. Þegar við vorum komin í 460 metra hæð (N:64.22.750 - W:21.13.790) og farin að nálgast snælínu var blásið til síðbúins hádegisverðar á móbergsklettum.
Snælínan var í 500 metra hæð og það gaf fjöllunum sérstakan virðuleika. Við höfðum densilegar Botnssúlur á hægri fót alla leiðina upp. Erlendu námsmennirnir stóðu sig vel í uppgöngunni þó sumir væri í óhefðbundnum útivistarfötum. Þegar á toppinn var komið eftir rúmlega þriggja tíma göngu, þá fönguðu stúdentarnir ærlega og fækkuðu fötum fyrir ofan belti, rétt eins og knattspyrnumenn gera þegar þeir skora mikilvæg mörk.
Fallegt útsýni er af Hvalfelli. Yfir Hvalfirði er Akrafjall, Skarðsheiðin, Ljósufjöll á Snæfellsnesi og Okið. Þá Þórisjökull og tignarlegur Skjaldbreiður. Að lokum nágranninn fallega hvítar Botnsúlur, Hengill og mikið voru Móskarðshnjúkar flottir hjá Esjunni. Kvígindisfell lúrði í nágrenni þriðja dýpsta stöðuvatns landsins, Hvalvatns og Skinnhúfuhöfði gengur fram í það.
Bráðdælingar á toppi Hvalfells. Kvígindisfell og Skjaldbeiður í baksýn. Skinnhúfuhöfði gengur út í Hvalvatn.
Við fórum niður vesturöxl Hvalfells og heimsóttum Glym. Þótti ferðafólki mikið til hans koma en gljúfrið leyndi mikið á sér. Upplifunin er öðruvísi þegar fossinn hái er skoðaður fyrst frá þessu sjónarhorni. Miðdegissólin braust fram og lýsti um fossinn á niðurleiðinni. Glæsilegt tímasetning.
Íslendingarnir horfðu með stolti á Glym en sögðu lítið enda fossum vanir. Erlendu ferðagarparnir sýndu meiri tilfinningar og létu mörg flott lýsingarorð falla enda sumir að sjá foss í fyrsta skipti.
Hópurinn kannaði möguleika á að setja símastaur sem var á austurbakka Botnsár. Hann var kyrfilega keðjaður. Því tók foringinn á það ráð að ganga fyrstur yfir til að kanna aðstæður, fyrstu fjórir metrarnir voru erfiðir, restin kökubiti. Stálvír liggur yfir Botnsá á þessum stað fólki til stuðnings. Gunnlaugur ferjaði hverja senjórítuna fá fætur annarri yfir ánna, vanur jökulám úr Lóni. Allir komust misvotir yfir en athyglisverðustu aðferðina átti Týrolbúi, eflaust frændi Arnolds Schwartzeneneggers en hann fetaði sig yfir vatnsfallið með því að halda sér uppi á höndum og fótum.
Er komið var yfir ánna, þá var farið upp jarðgöng sem opnuðust í tvær áttir og komið út hellisskút ofarlega í berginu. Þegar hópurinn gekk inn jarðgögnin sem vatn hefur sorfið í aldanna rás var kveikt á kerti. Rómantískari gat ferðin ekki orðið. Fólk sem var á undan okkur fyrr um daginn hafði eflaust verið að strengja sín heit.
Þegar upp úr jarðgöngum var komið fékk söngelski Stafafellsbúinn góða hugmynd. Þar sem hópurinn var svo alþjóðlegur, var blásið til Euróvision söngvakeppni. Hvert þjóðarbrot flutti þjóðlag. Það var skemmtileg stund en göngumenn voru misgóðir til söngsins. Íslendingarnir fluttu kraftmikið lag, Ríðum, ríðum yfir sandinn. Týrólarnir jóðluðu, sá finnski tók Lordi og Ítalinn aríu með Pavarottí. Senjóríturnar fluttu nautabanalag og Þjóðverjarnir fjallgöngumars.
Þegar heim var komið endaði fjallaveislan með fjallamyndinni "Þögnin kallar" en hún fjallaði um Toni Kurz og félega glíma við Eiger 1936.
Dagsetning: 25. október 2009
Hæð: 848 metrar
Hæð í göngubyrjun: Við bílastæði hjá Stóra Botni (60 m).
Uppgöngutími: 3 klst. og 10 mín (11:30 - 14:40)
Heildargöngutími: 6 klst. (11:30 - 17:30)
Erfiðleikastig: 2 skór
GPS-hnit tindur: 64.23.104 - 21.12.575
Vegalengd: 14,7 km
Veður: 6 gráður, hægviðri og bjart
Þátttakendur: Ferðaþjónustan Stafafelli, 27 manns
Gönguleiðalýsing: Löng og viðburðarík leið með methafa í nágrenni.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2009 | 18:26
Hraðsveitakeppni Súgfirðingafélagsins
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2009 | 22:40
Windows 7
Þann 22. október næstkomandi verður Windows 7 kynnt formlega fyrir heiminum. Á sjöan að taka við af Windows Vista sem hefur verið halið út í tæp þrjú ár.
Hægt hefur verið að sækja eintak af nýja stýrikerfinu og líkar þeim sem prófað hafa vel við gripinn. Nýja stýrikerfið er snarpara og stöðugra.
Þeir sem keyra á Window XP ættu að horfa til sjöunnar og uppfæra stýrikerfið við fyrsta tækifæri.
Uppfærsla á að vera einföld úr Vista yfir í Windows 7.
Þrír uppfærslumöguleikar eru fyrir XP notendur.
Einfaldasta leiðin ef nægt er diskpláss að skipta disknum upp og hafa XP og Windows 7 saman.
Leið tvö er að skipta út XP og setja hreina útgáfu af Windows 7 með því að nota "Easy Transfer" möguleikann. Setja þarf inn forrit að nýju annað erfist.
Þriðji möguleikinn er að uppfæra XP yfir í Vista SP1 og svo uppfæra úr Vista yfir í Windows 7. Þá þarf ekkert að setja upp aftur.
12.10.2009 | 20:59
Arctica Finance og Boreas Capital
Hvað eru 0,85% af tvöþúsund milljörðum?
Þegar ég sá fréttatilkynningu frá Boreas Capital í dag, rifjaðist upp fyrir mér að ráðgjafafyrirtækið Arctica Finance fékk um 100 milljónir króna fyrir að finna kaupanda að hlut OR í HS orku í síðasta mánuði. Arctica Finance er sjö manna fyrirtæki fyrrverandi starfsmanna gamla Landsbankans.
Í frétt á eyjan.is er frétt um gjörninginn: "Þóknunin sem Artica fær nemur 0,85% af verðmæti samningsins. Haft var eftir fjármálastjóra Orkuveitunnar að það væri um 102 milljónir króna. Hann fullyrti að þóknunin væri lægri en almenn gerðist á markaðnum.
Stöð 2 sagði að þetta gerði um 14,5 milljón króna á hvern starfsmann hjá Arctica. "
Boreas Capital er skráð til húsa að Hellusundi 6 í Reykjavík. Þar er einnig til húsa fjárfestingarfélagið Teton, en stjórnarformaður þess er Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar Davíðs.
Er þetta eitt stórt samsæri?
En svarið við spurningunni hér að ofan er 17 milljarðar - Ekki slæm þóknum fyrir að finna lánadrottinn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2009 | 17:43
Var tölvupósturinn dulkóðaður?
Það er fróðlegt að skoða tölvupóstsamskiptin á milli forsætisráðherra Íslands og Noregs með upplýsingaöryggi í huga.
Þegar tölvupóstur er sendur á milli tölva, þá getur hann komið við á nokkrum tölvum á leiðinni og til geta orðið nokkur afrit. Því getur þriðji aðili komist yfir efni tölvupóstsins. Einfalt dæmi er að þegar tölvupóstur er sendur þá er það eins og að senda póstkort milli manna.
Til eru aðferðir til að koma í veg fyrir þetta vandamál. Það er dulkóðun eða dulritun.
Við dulkóðun tölvupósts, er meiri trygging fyrir því að sendandinn sé í raun sá sem hann segist vera, og að ekki sé búið að breyta honum á leið til viðtakanda.
Samkvæmt fréttum, þá hefur efni tölvupósts Jóhönnu og Stoltenbergs ekki komist í hendur þriðja aðila. Kannski hafa forsætisráðherrarnir gætt fyllsta öryggis. Efni tölvupóstanna er nú orðið opinbert og það án hneykslis.
Öll fyrirtæki og stofnanir ættu að setja upp verklagsreglur um tölvupóst og fylgja ISO/IEC 27001 öryggisstaðlinum. Við lifum á merkilegum tímum þar sem vægi upplýsinga skiptir sífellt meira máli.
![]() |
Hærra lán ekki í boði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.10.2009 | 12:03
Sláandi myndir og staðreyndir um hop íslenskra jökla
|
10.10.2009 | 13:29
Éljabakki
Um daginn átti ég leið um Skeiðarársand. Þegar komið var framhjá hinum stæðilega Lómagnúp blasti Skeiðarárjökull bjartur i norðri og var eins fagur og hann getur orðið á þessum árstíma. Í suðri var Atlantshafið með sanauðn í forgrunni. En á móti okkur í austri sást grilla í Öræfajökul og var illúðlegur skýjabakki hangandi utan á honum.
Þegar við nálguðumst Öræfajökul, þá færðist éljaskýið á móti okkur og dökkir strókar voru í bakkanum Minnti þetta mig á hvirfilbyl. Það var sérkennileg tilfinning að keyra úr bjartviðrinu inn í óvissuna. Að endingu keyrðum við í gegnum bakkann og uppskárum haglél og úrkomu. Þegar við komum fyrir Öræfajökul, þá létti til og bjart var eins og áður fyrr.
Nokkrum klukkutímum síðar, þá áttum við leið til baka og þá hafði éljabakkinn fært sig að ströndinni. Það er margbreytilegt veðrið undir Vatnajökli. í gær var kolófært vegna storms. Það er annaðhvort í ökkla eða eyra. Engin lognmolla við Öræfajökul.
Éljabakkinn við ströndina, best geymdur þar. Blautur vegurinn segir okkur frá því er bakkinn vökvað hann nokkru áður en hiti var um 5 gráður og öll haglél afmáð.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009 | 23:57
Guð blessi Ísland ***
Þjóðverjar töpuðu mest, þeir vilja ekki tala um það. Skammast sín svo mikið.
Eitthvað á þessa leið segir Jón Ásgeir í falinni myndavél í heimildarmyndinni um bankahrunið, Guð blessi Ísland eftir Helga Felixson. Þetta er ein athyglisverðasta kenningin í myndinni.
Helgi notar nýja aðferð, falda myndavél og nær nokkrum óvæntum atvikum. Sérstaklega koma ríku karlarnir skemmtilega út. Ég er ósáttur við þessa nálgun í heimildarmyndum. Þarna er farið út á grátt svæði og traust getur hæglega glatast.
Myndin segir frá þrem persónum sem eru aktíf í Búsáhaldabyltingunni. Tveir eru öflugir mótmælendur, Sturla Jónsson og Eva í Nornabúðinni og þriðji er lögga, Dúni Geirsson. Síðan er skipt á milli á útrásavíkingana, Bjarna Ármanns, Björgúlf Thor og Jón Ásgeir. Einnig kemur fv. forsætisráðherra Geir H. Haarde við sögu.
Sturla er sýndur í nýju ljósi og kemur feikna vel út með fjölskyldunni. Löggan sem ver Alþingi fyrir mótmælendum kemur einnig vel út. Ekta Íslendingur, fullur af hæfileikum á mörgum sviðum.
Það sorglegasta við Búsáhaldabyltinguna sem heppnaðist vel, ríkisstjórnin féll, er að söguhetjurnar flúðu land. Láta aðra um uppvaskið eins og Sturla orðaði svo skemmtilega.
Tónlistin er góð hjá allsherjargoðanum Hilmari Erni Hilmarssyni. Myndataka er góð á köflum en fréttamyndir koma illa út.
Ágætis samantekt á Búsáhaldabyltingunni og persónum sem henni tengdust. Aðeins of langdregin og enginn sökudólgur fundin fyrir hruninu.
4.10.2009 | 16:40
Samba 2009
Brasilíumenn eru þekktir fyrir samba dans enda er þeim takturinn og dansinn í blóð borinn. Þeir eru einnig þekktir fyrir að spila boltanum vel milli manna og búa yfir mikilli knatttækni. Uppskar knattspyrna þeirra viðurnefið samba knattspyrna.
Í leiknum Arsenal - Blackburn þá sáust ekta samba taktar, Samba 2009 hjá frískum leikmönnum Arsenal. Ótrúlegar sendingar og mikill leikskilningur með og án bolta sem gáfu marga möguleika á fallegum sóknum.
Mér var hugsað til markvarðar Blackburn, Paul Robinson meðan samba knattspyrnan var í fullum gangi. Rifjaðist upp fyrir mér að hann hefur spilað með þrem liðum, Leeds, Tottenham og Blackburn og hefur hann verið fremur ófarsæll með úrslit gegn Arsenal eftir ágætis byrjun.
26-11-2000 Úrvalsdeildin Leeds 1-0 Arsenal
28-09-2002 Úrvalsdeildin Leeds 1-4 Arsenal
04-05-2003 Úrvalsdeildin Arsenal 2-3 Leeds
01-11-2003 Úrvalsdeildin Leeds 1-4 Arsenal
04-01-2004 FA-Bikarinn Leeds 1-4 Arsenal
16-04-2004 Úrvalsdeildin Arsenal 5-0 Leeds
13-11-2004 Úrvalsdeildin Tottenham 4-5 Arsenal
25-04-2005 Úrvalsdeildin Arsenal 1-0 Tottenham
29-10-2005 Úrvalsdeildin Tottenham 1-1 Arsenal
22-04-2006 Úrvalsdeildin Arsenal 1-1 Tottenham
02-12-2006 Úrvalsdeildin Arsenal 3-0 Tottenham
24-01-2007 Deildarbikarinn Tottenham 2-2 Arsenal
31-01-2007 Deildarbikarinn Arsenal 3-1 Tottenham
21-04-2007 Úrvalsdeildin Tottenham 2-2 Arsenal
15-09-2007 Úrvalsdeildin Tottenham 1-3 Arsenal
22-12-2007 Úrvalsdeildin Arsenal 2-1 Tottenham
13-09-2008 Úrvalsdeildin Blackburn 0-4 Arsenal
14-03-2009 Úrvalsdeildin Arsenal 4-0 Blackburn
04-10-2009 Úrvalsdeildin Arsenal 6-2 Blackburn
19 leikir hjá Paul Robinson á öldinni. Uppskeran: 2 sigrar, 4 jafnefli og 13 ósigrar.
Markatalan er: 54 mörk gegn 22 en hann getur lítið bætt það upp í markinu. Hann hefur aðeins einu sinni náð að halda hreinu, í fyrsta leik.
Meðaltal, 2.8 mörk að meðaltali í leik sem hann hefur fengið á sig. Það er skelfilegt markahlutfall fyrir markvörð.
Dettur mér í hug slagarinn sem oft er sunginn af stuðningsmönnum liða er vel gengur, "Can We Play You Every Week?".
Heimild:
Soccerbase.com
![]() |
Arsenal í 4. sætið með stórsigri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.7.): 0
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 243
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 204
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar