13.8.2009 | 00:17
Menn sem hata konur ****
Sænska spennumyndin Menn sem hata konur (Män som hatar kvinnor) er vel heppnuð og heldur manni vel við efnið.
Sagan er í Agötu Christie stíl. Dularfullt mannshvarf og allir fjölskyldumeðlimir hinnar efnuðu Vanger fjölskyldu liggja undir grun. Rannsóknarblaðamaðurinn Mikael Blomkvist er fenginn til að leysa þetta 40 ára gamla mál. Inn í málið kemur nútímakonan og tölvuhakkarinn Lisbeth Salander sem er vel leikin af íslenskættaðri Noomi Rapace.
Persónusköpun er góð og tekur nokkurn tíma í byrjun myndar. Inn í söguna fléttast "Byrgismál" og Nazistar eru endalaust fóður fyrir góðar fléttur.
Myndin byggir á bók eftir Stieg Larsson sem ég hef ekki lesið og hef því ekki samanburð milli miðlana. Veit ekki hvort ég leggi í bækurnar í vetur, hver veit. En mér líst vel á framhaldið.
Þetta er áhugaverð mynd fyrir tölvunörda. Þeir eiga sinn fulltrúa þó hann sé á jaðrinum og ekki skemmir fyrir að hafa konu í því hlutverki. Hún er eldklár í tölvuinnbrotum og vinnur á við eitt gengi. Það eru tvö atriði sem tölvuáhugamenn ættu að taka sérstaklega eftir.
1) Þegar Lisbeth sendir dulkóðaðan tölvupóst til félaga síns "Plague", þá kemur "decrypting" í stað "encrypting" á tölvuskjáinn. Dulritun (dulkóðun, e. encryption) felst í stuttu máli í því að umrita tiltekin skilaboð þannig að óviðkomandi geti alls ekki komist að innihaldi þeirra. Öfuga ferlið til að endurheimta upprunalegu skilaboðin er kallað dulráðning (afkóðun, e. decryption).
2) Myndin á að gerast árið 2005 en Michael og Lisbeth nota Apple MacBook Pros tölvu sem fyrst var seld árið 2006. Svo versnar það. Lisbeth notar Mac OS X 10.5 "Leopard" sem fyrst kom á markað í október 2007. Þetta er smáatriði sem skiptir ekki máli en verður að vera til að gera myndina meira sannfærandi. Tæknin er færð fram í nútímann en glæpurinn stenst tímans tönn.
Góða skemmtun og reynið að finna skúrkinn á undan Mikael og Lisbeth.
Meginflokkur: Kvikmyndir | Aukaflokkar: Tölvur og tækni, Vefurinn | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 233595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bókin er nú töluvert miklu betri en myndin. Áhugavert þetta með tölvurnar.
jonas (IP-tala skráð) 13.8.2009 kl. 01:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.