5.4.2009 | 11:44
Netbankinn er tómur
Þeim hefur hríðfækkað netbönkunum eftir bankahrunið. Tveir netbankar sem ég hef notað hafa lokað. Ég fór því niður í KB-banka í niðri í Smára í morgun en hann er staddur á jarðhæð turnsins.
Eftir að hafa slegið inn PIN númer og valið upphæð, þá kom melding, Netbankinn er tómur. Síðan var mér boðið að halda áfram. Ég fór aðra umferð og bað um minni upphæð, en sama svar. Netbankinn var tómur. Ég gat fundið takka, Hætta við og þá kom kortið.
Ég gafst ekki upp, fór upp í fjármálahverfið í Hamraborg og þar fann ég Netbanka sem ekki var tómur. Ég á því lausafé.
Meginflokkur: Tölvur og tækni | Aukaflokkur: Fjármál | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 233593
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Úff og þetta eru agnarsmáir bankar minni en kóksjálfsali. Er nú ekki fokið í öll skjól ?
Finnur Bárðarson, 5.4.2009 kl. 12:04
Hvernig væri ef stjórnvöld myndu "upplýsa þjóðina" um stöðuna í núverandi bankakerfi, þá held ég að margir myndu fá gott áfall.... Staðan er ömurleg, og hún á bara eftir að versna. Mæli með bankahólfum í stað bankabókar, og hætta að greiða af öllum lánum sem fyrst...! Þannig náum við að knýja stjórnvöld til að skilja að fókusinn verður að vera meira á "hag einstaklinga & fjölskyldna", bönkum & mikið af þessu fyrirtækjadrasli er ekki bjargandi. Hvaða fyrirtæki og einstaklingar í heiminum ræður við 17% vexti & verðtryggingu??? Svarið er augljóst: "enginn", enda rukkar mafían bara 10% vexti hún veit að aðeins þannig er von á að fórnarlambið ráði við þá "okurvexti", allt yfir 10% er bara "geðbilinu....." Hættum að láta nauðga okkur, segjum hingað og ekki lengra, við "mótmælum öll" þessari "nauðgun sem íslenska bankakerfið hefur staðið fyrir síðustu 20 árin eða svo. Nú á ég bara viðskipti við "Blóðbankann" legg þar mikið inn, enda er ég "gæðablóð...." Forza réttlæti.
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 14:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.