12.12.2015 | 11:41
Dómsdagsklukkan
Í dag ber að fagna. Nýr loftslagssamningur verður undirritaður í París sem byggir á trausti.
Ólafur Elíasson og grænlenski jarðfræðingurinn Minik Rosing settu upp listaverkið Ice Watch á Place du Panthéon. 12 grænlenskum ísjökum var komið fyrir á á Place du Panthéon og mynda vísa á Dómsdagsklukku.
Það var áhrifaríkt að sjá ísklukkuna. Þarna var fólk af öllum aldri og öllum kynþáttum alls staðar úr heiminum. Margir hverjir að sjá ísjaka í fyrsta skipti og gaman að upplifa viðbrögð þeirra, ungra sem aldna. Þarna fræðir listin fólk á áþreifanlegan hátt og kemur vonandi hreyfingu á hlutina. En Hólárjökull og Dómsdagsklukkan eiga margt sameiginlegt, bæði að hverfa inn í tómið.
Ólafur Elíasson vonast til að listaverkið nái að brúa bilið milli gagna, vísindamanna, stjórnmálamana og þjóðhöfðingja og venjulegs fólks.
Við skulum grípa þetta einstaka tækifærir, við heimurinn- getum og verðum að grípa til aðgerða nú. Við verðum að umbreyta þekkingu á loftslaginu í aðgerðir í þágu loftslagsins, segir Ólafur Elíasson. Listin getur breytt skynjun okkar og heildarsýn á heiminum og Ice Watch er ætlað að gera loftslagsbreytingar áþreifanlegar. Ég vona að verkið geti orðið mönnum innblástur til að takast á hendur sameiginlegar skuldbindingar og grípa til loftslagsaðgerða.
80 tonnum af ísjökum frá Grænlandi og mynda þeir vísana á klukku
Meginflokkur: Umhverfismál | Aukaflokkar: Menning og listir, Stjórnmál og samfélag, Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 233595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tímamótasamkomulag í loftslagsmálum náðist í kvöld á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París. Athyglisvert, 12 ískjakar og dagsetningin 12.12. Táknrænt!
Sigurpáll Ingibergsson, 13.12.2015 kl. 11:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.