8.2.2010 | 00:11
Maybe I Should Have ****
Það voru sorglega fáir á góðri og skemmtilegri heimildarmynd, Maybe I Should Have, í Kringlubíó í gærkveldi. Setti það að mér ákveðin ugg um að landsmenn séu farnir að gefast upp í baráttnni um Nýja Ísland. Það má ekki sofna aftur á verðinum.
Í byrjun myndar er farið yfir sviðið og saga hrunsins sögð fram að stjórnarslitum fyrir rúmu ári. Það þekkja allir þá sögu en hún hefur komið í öðrum heimildarmyndum, bókum og ánnálum. Eftir þennan inngang fer Gunnar Sigurðsson, leikstjóri í leit að peningunum sem hurfu. Notar hann sömu aðferð og Michael Moore. Hann ferðast til London og Luxemburgar, skoðar bankabyggingar og fyrirtæki. Einnig ræðir við fólk. Það liggur leiðin til Guernsey og Tortola. Ekki finnur hann neina peninga en hefur ákveðinn grun hvar þá gæti verið að finna.
Einnig er rætt við þekkta erlenda aðila, m.a. fjármálaeftirlitsmanninn William Black, Evu Joly og Robert Wade en þau hafa komið með góð ráð í Silfri Egils.
Niðurstaða er að ekkert hefur breyst á þessu rúma ári frá hruni. Það er eflaust mikið til í því, sérstaklega í ljósi síðustu fregna. Jón Ásgeir og Jóhannes Jónsson eru jafnvel að eignast Baug aftur og Ólafur Ólafsson að eignast Samskip. Allt stefnir í sama farið.
Myndin endar á tveim öflugum lögum, Fjalabræður flytja áhrifamikið lag, Freyja, á Þingvöllum. Eflir það þjóðerniskenndina. Hjálmar eiga síðustu raggítónana.
Létt og skemmtileg heimildarmynd um hrunið og verður verðmætari er frá líður.
Meginflokkur: Kvikmyndir | Aukaflokkar: Fjármál, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 2
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 235893
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér skilst að þetta sé góð mynd, en fólk er hætt að nenna að velta sér upp úr ruglinu.
Jón Halldór Guðmundsson, 13.2.2010 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.