Færsluflokkur: Íþróttir

Þórbergsleikar

Tíunda Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Hornafirði um verzlunarmannahelgina. Þetta er frábært framtak hjá hreyfingunni og nauðsynlegt til að halda æskunni frá drykkjumenningu landans um þessa blautu helgi.  

Þegar ég las frétt í Eystrahorni fyrir tveim árum um að landsmótið yrði á Hornafirði þá skrifaði ég pistil á horn.is um nýja íþrótt, Þórbergsleika.  Ég sé mér til mikillar ánægju að Þórbergleikar verða á dagskránni.

Þórbergur Þórðarson frá Hala í Suðursveit er merkilegur maður. Allt héraðið er sögusvið bóka hans og honum tókst betur en nokkrum öðrum að kalla fram sérkenni íslenskrar alþýðumenningar með verkum sínum. Áskorun Þórbergsleika er að svara ákallinu í verkum hans og halda  áfram að draga fram sérkenni heimabyggðar, að bjarga menningarverðmætum frá glötun, að færa þekkingu fortíðar inn í framtíðina, að lifa með landinu.

Ég birti hér fyrir neðan pistilinn sem skrifaður var 13. marz 2005.  - Hittumst á Hornafirði á Þórbergsleikum.

 

Best er að hefja skrifin með því að óska Hornfirðingum til hamingju með að hafa fengið Unglingalandsmót UMFÍ 2007.

Forsíðufréttin í Eystrahorni þann 4. ágúst greinir frá niðurstöðunni og rætt er við bæjarstjóra okkar Albert Eymundsson. Bæjarstjórinn er eðlilega ánægður og þegar ég las þessa málsgrein í fréttinni kviknaði hugmynd í kolli mínum.

“Hann segir mótshaldara ráða hvaða greinar verði í boði og hvatt sé til þess að bjóða upp á nýjar keppnisgreinar og draga fram sérkenni svæðanna.”

Hvarflaði hugurinn til meistara Þórbergs Þórðarsonar. En ég var enn undir áhrifum af skrifum hans eftir að hafa lesið Ofvitann á sama tíma og  Unglingalandsmótið var haldið í Vík.

Rifjaðist þá upp frábært erindi, Hvað vildi Þórbergur? sem Guðmundur Andri Thorsson flutti í Norræna húsinu á afmælisdegi Þórbergs Þórðarsonar 12. mars 2004.  Það lagði hann út frá skoðunum Þórberg á íþróttum sem kom fram í samtalsbók þeirra Þórbergs Þórðarsonar og Matthíasar Johannesen, Í kompaníi við allífið. Þórbergur er stríðinn í samtalinu og gerir gys að þrístökki en þjóðin var þá nýbúin að eignast sinn fyrsta verðlaunagrip á Ólympíuleikum.

Draumsýn Þórbergs:

Fótboltinn mun blómstra í nýjum tilbrigðum og ferðast til kappleikja um allan jarðarhnöttinn. Mikil hástökk munu og reisa um jarðir, sömuleiðis hækkandi grindarhlaup, gaddavírshlaup, æ markvísari spjótköst, lengri og hraðari Maraþonhlaup, fimmstökk, sjöstökk og nístökk. (Kompaníið bls. 250).

Heimurinn er enn ekki kominn lengra á þróunarbrautinni en svo að stökkin eru ekki nema þrjú.

Draumur Guðmundar Andra Thorssyni var að sjá íþróttamót sem kennt væri við Þórberg. Þar sem keppt væri í hækkandi grindarhlaupi, gaddavírshlaupi, hoppi á einum fæti og nístökki. 

Því væri gaman að keppt væri í einni af þessari nýstárlegu  keppnisgrein á Unglingalandsmóti UMFÍ á Hornafirði 2007.  Þá myndum við einnig sjá nýtt heimsmet.  Ekki væri verra að halda eitt densilegt Þórbergsmót með nokkrum greinum.

Það er varla hægt að finna betri tengingu fyrir sérkenni Sveitarfélagsins og að minnast ofvitans Þórbergs um leið.

 

P.s.

Erindi Guðmundar Andra Thorssonar.

http://www.thorbergur.is/files/hvad_vildi_thorbergur.pdf


HK Íslandsmeistari í handbolta?

Var að koma úr Digranesi af handboltaleik HK og Hauka.   Fín stemming í sveiflukenndum leikur. HK var með fína forystu í hálfleik, 15-9 en Haukar hafa drukkið sterkt te í hálfleik og söxuðu á forskotið. Það hefur ekki verið sterkasta hlið HK að halda góðri forystu.  Staðan var rafmögnuð í 19-19 og fjórir HK menn til varnar en markvörður HK, Egidijus Petkevicius kom með tvær frábærar markvörslur og eftir það var aldrei spurning um hvort liðið var betra. Lokatölur 33-28. Binnamenn, vöskustu stuðningsmenn landsins studdu vel við heimaliðið allan leikinn.

Snemma leiks var rússneska línumanninum öfluga Sergey Petraytis sýnt rautt spjald. Það var strangur dómur hjá umdeildum dómurum leiksins. Þeir jöfnuðu það síðar út með því að sýna Haukamanni samskonar spjald.

Nú er bara fyrir HK-menn að fara til Akureyrar og sækja sigur og Haukar eiga að geta strítt Val. Þá verður Íslandsmeistaratitilinn Kópavogsmann. HK er klárlega með bezta handboltaliðið í dag, en óþarfa jafntefli í Digranesi hafa verið dýrkeypt. Þetta yrði fyrsti Íslandsmeistaratitill HK.

HK-veldið er á stöðugri uppleið í boltanum. Verður stórveldi innan tíðar. Öflug uppbygging í Kópavogi.

DSC_8142

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Egidijus Petkevicius hinn frábæri markvörður HK. Hann þarf að fá íslenskan ríkisborgararétt sem fyrst. Það er ávallt gaman að fylgjast með honum þegar hann fær á sig mark, hann verður svo pirraður. Maður sem vill ávallt gera betur.


« Fyrri síða

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 233606

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband