Færsluflokkur: Tónlist

Neon Bible - Arcade Fire

Ég hlakkaði til að ganga í vinnuna í morgun. Veðrið var fallegt, sól og blíða en það var samt ekki ástæðan. Heldur var það að ég keypti í gær geisladiskinn The Neon Bible með kanadísku jaðarrokksveitinni Arcade Fire og hlóð honum inn á iPodinn minn. 

Ég hef heyrt tvö lög af nýju plötunni í útvarpinu og líkar þau mjög vel. Lagið Intervention er tær snilld. Orgelspilið í upphafi er stórmagnað og stígandinn í laginnu magnaður. Enda er verið að predika yfir okkur. Platan ver nefnilega tekin upp í kirkju rétt utan við Québec.

Ég beið spenntur eftir að fara í gegnum öll ellefu lögin. Gangan hófst á laginu  Black mirror. Það rann vel í gegn. Við Nýbílaveg var ég stopp við umferðaljós og hlustaði á Keep the car running. Það átti vel við og ég kannaðist við það úr Rokklandi. Titillagið Neon Bible kom næst. Hrátt lag.  Síðan kom Interventinon þegar farið var yfir Fossvogsdalinn. Mikið var Hengillinn flottur, mikið var gott að hafa þessa málamiðlun þegar farið var yfir í Reykjavík. Eftir þetta komu lög sem ég kannaðist ekki við og gripu mig ekki. Það kom mér á óvart en með meiri hlustun hljóta þau að vinna á.

Á heimleiðnni var spiluð önnur umferð. Ég bíð spenntur eftir næstu viku, ég ætla að hlusta mikið á boðskapinn frá Arcade Fire.

Annars er sveitin vel skipuð, sjö meðlimir og er Win Butler fremstur meðal jafningja. Þeir kunna ýmislegt fyrir sér í tónfræðum og spila á ýmis hljóðfæri og nýta sér kórsöng. Það bregður fyrir strengja- og málmblásturshljóðfærum, hörpu svo eitthvað sé nefnt. 

Neon Bible 

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 19
  • Sl. viku: 109
  • Frá upphafi: 226418

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 103
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband