16.9.2010 | 14:14
Stóri Sam hjá Blackburn
"Sam Allardyce knattspyrnustjóri Bolton sakar kollega sinn hjá Arsenal"
Sam Allardyce er hjá Blackburn en Owen Coyle er núverandi stjóri Bolton. Ţessi frétt var rétt árin 1999 til 2007.
Arsenal spilađi viđ Blackburn í lok ágúst og hafđi sigur 1-2 en leikur viđ Bolton međ Owen Coyle var um síđustu helgi.
![]() |
Allardyce: Wenger međ flesta fjölmiđla í vasanum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
11.9.2010 | 17:22
Borgar sig ekki ađ haardera
Ţađ borgar sig ekki ađ haardera ţegar mađur er í ríkisstjórn. Vissulega eiga ráđherrarnir fjórir allir ađ fara fyrir Landsdóm og fá niđurstöđu sem ţeir eiga skiliđ. Ţá fer okkur fram sem ţjóđ.
Á slangurorđabókinni snara.is er ţessi skilgreining á nýyrđinu haardera.
Haardera
![]() |
Tvćr tillögur um málshöfđun |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
10.9.2010 | 22:11
Kópavogsliđin međ yfirburđi í yngri flokkum
Var ađ koma af úrslitaleik í Íslandsmótinu í 4. flokk á Kópavogsvelli. Ţađ var hörku leikur milli nágrannana í Kópavogi, HK og Breiđabliks. Ţeir grćnklćddu uppskáru verđskuldađan sigur í ágćtis leik.
Í gćr sá ég leik sömu liđa í undanúrslitum 3. flokks á Smárahvammsvelli. Ţar snerust úrslitin viđ og komur HK menn í úrslitaleikinn. Ţeir spila um helgina viđ Breiđablik 2 en ţeir lögđu Víkinga í hinum undanúrslitaleiknum.
Í 5. flokki gekk Kópavogsliđum ágćtlega. Einnig í flokkunum ţar fyrir neđan. En hver skyldi ástćđan vera. Eflaust eru frábćrar ađstćđur til knattspyrnuiđkunar ađ skila sér í góđum árangri. Til eru tvćr knattspyrnuhallir í Kópavogi, Fífan og Kórinn og einnig góđ ađstađa fyrir félögin, HK og Breiđablik. Ekki má gleyma ađ ţjálfarar eru fćrir í sínu fagi.
Gott dćmi um mun á ađstćđum er ţegar Gylfi Ţór Sigurđsson fór frá FH yfir til Breiđabliks ţegar hann var táningur en hann stefndi hátt og ađstćđur voru betri í Kópavogi en Hafnarfirđi. Nú er Breiđablik ađ uppskera ríkulega fyrir knattspyrnumanninn. Ţegar Gylfi fór fyrir mikinn pening frá Reading til Hoffenheim fékk Breiđablik yfir 100 milljónir á sinn reikning. FH og Breiđablik skiptu svo uppeldisupphćđinni á milli sín, 10 milljónum á félag.
Ţađ er gott ađ spila fótbolta í Kópavogi.
Blikur á lofti í úrslitaleik HK og Breiđabliks í 4. flokki viđ frábćrar ađstćđur á Kópavogsvelli.
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
9.9.2010 | 21:51
Seljadalur – Torfdalshryggur (341 m)
Veđurspáin lofađi skúrum en ţađ var ágćtis veđur ţegar lagt var í hann frá Toppstöđinni. Ţegar komiđ var á Torfdalshrygg var úrkoman orđin ţétt.
Fyrst var komiđ viđ hjá Hafravatnsrétt en ţađ er ágćtt útivistarsvćđi sem Mosfellsbćr og skógrćktin halda um. Ţangađ hafđi ég ekki komiđ áđur og eflaust kíkir mađur ţangađ í vetur. Frá réttinni var ekiđ inn Ţormóđsdal ađ grjótnáminu viđ Silungavatn. Stefnan var sett á Nessel sem er vel stađsett í Seljadal. Ţar var lesinn húslestur fyrir göngumenn.
Ţađan var haldiđ á Torfdalshrygg en tekur hann nafn af Torfdal. Torf var rist í Torfdal. Reiđingur var tekinn í Torfdalnum og notađur yfir hey sem stóđu í heygörđum. Af Torfdalshrygg sást vel í nágrannan Grímarsfell og yfir í Helgadal. Einnig lá höfuđborgin undir fótum manns. Vífilsfell bar af í austri.
Úrkoma fćrđist í aukana ţegar haldiđ var niđur hrygginn ađ Bjarnarvatni en ţar eru efstu upptök Varmár. Í útfalli vatnsins stóđ eftir stífla sem Sigurjón Pétursson á Álafossi lét reisa áriđ 1926 eđa 1927 til vatnsmiđlunar. Viđ stífluna var nestisstopp í úrkomunni. Síđan hófst leitin ađ bílunum í kvöldrökkrinu.
Eftir ađ hafa gengiđ á hrygginn kom mér í hug hversu mörg örnefni tengjast mannslíkamanum. Hryggur, enni, kjálki (Vestfjarđakjálki), bak, barmur, bringa / bringur, geirvörtur, haus, háls, höfuđ, hné, hvirfill, hćll, kinn, nef, rif, tá, tunga, vangi, ţumall og öxl. Síđan hef ég fundiđ nokkur í viđbót, sum má deila um; Kollseyra, Tannstađir, Skeggöxl, Augastađir, Síđa, Kriki, Kálfatindar, Skarđ, Leggjabrjótur, Kroppur og Brúnir.
Dagsetning: 8. september 2010
Hćđ: 341 metrar
Hćđ í göngubyrjun: 140 metrar, viđ Grjótnám í Ţormóđsdal (64.07.569 - 21.34.793)
Uppgöngutími: 55 mín (19:10 - 20:15)
Heildargöngutími: 125 mínútur (19:10 - 21:15)
Erfiđleikastig: 1 skór
GPS-hnit varđa: N: 64.08.611 - W: 21.34.555
Vegalengd: 7,0 km (2,0 km bein lína frá bíl ađ toppi.)
Veđur kl 21: 12,6 gráđur, 5 m/s af A og úrkoma, raki 84%, skyggni 35 km
Ţátttakendur: Útivistarrćktin, 36 manns, 12 bílar.
GSM samband: Já - gott samband
Gönguleiđalýsing: Létt ganga sem hófst viđ grjótnámiđ í Ţormóđsdal. Ţađan gengiđ inn Seljadal ađ Nesseli og á Torfdalshrygg. Gengiđ til baka međfram Bjarnarvatni. Vegalengd 7 km. Hćkkun 200 m.
Af Torfdalshrygg. Flott birta og mosinn og grjótiđ takast á. Grímarsfell gćgist yfir hrygginn.
Ferđalög | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2010 | 21:56
Last Chance to See
Hann er skemmtilegur og frćđandi heimildarţátturinn Síđustu forvöđ (Last Chance to See) sem er á mánudagskvöldum. En ţćttir frá BBC hafa ákveđin klassa yfir sér og komast fáir framleiđendur nálćgt ţeim.
Ţar ferđast félagarnir Stephen Fry, leikari og Mark Carwardine, dýrafrćđingur, ljósmyndari og rithöfundur um heiminn og skođa dýr sem eru í útrýmingarhćttu. Ţeir fylgja eftir ferđ og ţáttum sem gerđir voru fyrir 20 árum og bera saman.
Mark Carwardine er Íslandsvinur. Ég hef orđiđ svo frćgđur ađ hitta hann eitt sinn á Hornafirđi en ţá var hann ađ hvetja menn til ađ hefja hvalaskođunarferđir hér viđ land. Ţetta hefur veriđ haustiđ 1993. Hann miđlađi mönnum af kunnáttu sinni. Ég man ađ hann var ađ skipuleggja ferđ norđur á land til Dalvíkur og Húsavíkur. Jöklaferđir voru ţá nýlega um sumariđ búnir ađ fara međ farţega í skipulagđar hvalaskođunarferđir á Sigurđi Ólafssyni frá Hornafirđi.
Mark var ţćgilegur í umgengni. Kurteis eins og allir vel uppaldir Englendingar. Sagđi "thank you" reglulega. Hann var međ fjölskyldumeđlimi í ferđinni á Hornafirđi og ţau áttu ekki orđ til ađ lýsa náttúrufegurđinni út um hótelgluggann ţegar skjannahvítan jökulinn bar viđ himinn.
Mark hefur ritađ bćkur sem gefnar hafa veriđ út hér á landi. Bókin Hvalir viđ Ísland, risar hafdjúpanna í máli og myndum ef eitt afkvćma hans. Ari Trausti Guđmundsson ţýddi og Vaka-Helgafell gaf hana út áriđ 1998.
Á bókarkápu segir ađ hann líti á Ísland sem annađ heimaland sitt og hefur komiđ hingađ meira en 50 sinnum frá árinu 1981.
Bókin hefst á ţessum skemmtilegu orđum: "Hvalaskođun viđ Ísland hefđi fyrir nokkrum árum ţótt jafnfjarri lagi og froskköfun í Nepal, skíđamennska í Hollandi eđa strandlíf á Svalbarđa. Fyrsta almenna hvalaskođunarferđin var farin frá Höfn í Hornafirđi 1991 til ađ skođa hrefnur og hnúfubaka undan hinni stórbrotnu suđausturströnd Íslands. Allar götur síđan hefur ţjónustugrein ţessi vaxiđ ađ umfangi og telst landiđ nú afar eftirsóknarvert međal hvalaskođara um heim allan."
Nú er bara ađ bíđa eftir nćstu ţáttaröđ hjá ţeim félögum, hann verđur kanski um dýralíf á Íslandi.
Sjónvarp | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2010 | 12:23
Rafmagnsflokkurinn
Allir vita hver Besti flokkurinn er en enginn veit um Rafmagnsflokkinn.
Rafmagnsflokkurinn: Fjárhagsleg undirstađa flokksins vćri rafvirkjun í geysistórum stíl, hagnýting stórra vatnsfalla sem síđan ćtti ađ stjórna međ landinu. Hann átti ađ stjórna landinu og leiđa ţađ til atorkusemi, velmegunar og andlegs ţroska.
Ţessi flokkur er hugsmíđ meistara Ţórbergs í nýútkominni bók, Meistarar og lćrisveinar. Í einum kaflanum, Blessed are the meek, ţá býr hann til persónu sem hann er meistari yfir. Lćrisveinninn tekur á móti lífsspeki meistarans og sýnir miklar framfarir en fer síđan síđan sínar eigin leiđir. Hann stofnar Rafmagnsflokkinn, hlutafélag sem ćtlađi sér ađ gangast fyrir ţví ađ reist skyldi rafmagnsstöđ viđ Sogsfossana til ţess ađ veita Reykjavík og nágrenni raforku til ljósa og iđnađar. Eflaust er ţarna Einar Benediktsson á ferđ eđa andi hans.
En skyldi vera til rafmagnsflokkur í dag?
Mér kemur strax í hug Sjálfstćđisflokkurinn en hann vill virkja helstu vatnsfjöll landsins á lćgsta orkuverđi í heimi til ađ skapa atvinnu. Ávinningurinn er nokkur störf, stórskemmd náttúra, gjaldţrota orkufyrirtćki og gjaldţrota bćjarfélög.
Einnig kemur Framsóknarflokkur Halldórs Ásgrímssonar upp í hugann en hann hefur ekki galađ eins mikiđ um álver međ nýjum foringja.
Rafmagnsflokkurinn hefur notađ nýja tćkni til ađ réttlćta framkvćmdir. Rafmagnsflokkur hefur innleitt hugtakiđ afleidd störf.
Rafmagnsflokkurinn minnist aldrei á umhverfisáhrif virkjanaframkvćmda.
Fyrir kosningarnar 2009 fór Rafmagnsflokkurinn hamförum í álversumrćđum, formađur ţeirra Bjarni Benediktsson fullyrti í kosningaţćtti Ríkissjónvarpsins ţann 8. apríl 2009 ađ ţau störf sem fylgja tveimur nýjum álverum og afleidd áhrif, skipta ţúsundum, skipta ţúsundum. Í kosningaauglýsingum Sjálfstćđisflokksins er fullyrt ađ um sé ađ rćđa 6000 afleidd störf.
En hvar á ađ virkja og hvađ sköpuđust mörg afleidd störf á Austurlandi? Alla vega eru margar tómar íbúđir ţar í dag og fólki fćkkar í fjórđungnum. Starfsmannavelta er einnig mikil í verksmiđjunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2010 | 13:37
Veikleikar í vefţjóni DV
Í vikunni varđ vefur DV fyrir árás rafbarbara. Árásin var rakin í vesturstrandar Bandaríkjanna en ţar hafa tölvuţrjótar uppgötvađ veikleika hugbúnađi á vefţjóni sem notađur var til ađ birta auglýsingar. Ţar plöntuđu ţrjótarnir niđurhalsveiru á vefţjóninum. Ţeir sem heimóttu fréttavefinn frá kl. 17:40 á miđvikudaginn til klukkan 11:50 á fimmtudaginn fengu flestir ađvörun frá vírusforriti sínu um ađ síđan vćri smituđ. Ţeir sem hafa Windows 7 stýrikerfiđ eiga ađ vera nokkuđ öruggir um ađ smitast ekki en ţeir sem hafa tölvur međ ófullkomnum vírusvörnum gćtu hafa smitast.
Svona atburđur er mikiđ áfall fyrir enda tekur framkvćmdastjóri DV, Bogi Örn Emilsson undir ţađ. Hann sagđi í frétt í Fréttablađinu: "árásina vera mikiđ áfall fyrir DV og ţeirra ímynd. Blađiđ sé í harđri samkeppni viđ önnur fjölmiđlafyrirtćki um veftrafflík og hćtt sé viđ ađ árásin hafi áhrif á ţađ.
Ég fór í kjölfariđ á ţessu áfalli DV-manna í smávćgis rannsókn á öđrum íslenskum vefmiđlum. Ég notađi til ţess veikleikaskönnunarforrit. Á vef Modernus er listi yfir nokkra af vinsćlustu vefjum landsins, samrćmd vefmćling heitir hann og tók ég fréttamiđlana út.
Ástandiđ er ágćtt hjá ţeim, enginn er međ ţekkta alvarlega veikleika og ţeim er vel viđhaldiđ. Ég er samt ekki ađ gefa neina syndakvittun, ţví mögulegt er ađ til séu óţekktar öryggisholur sem bíđa ţess ađ verđa misnotađar.
Ţessi árás er áfall fyrir DV en mér fannst viđbrögđ ţeirra góđ eftir ađ ţeir áttuđu sig á ţví hvađ var á seyđi. Hins vegar er tíminn sem leiđ frá ţví ađ óvćran kom á ţjóninn og ţangađ til ráđstafanir voru ferđar full langur. Svona hlutir eiga ađ finnast fyrr á svo fjölsóttum vef.
En hvađ geta eigendur vefmiđla gert til ađ minnka líkurnar á ţví ađ svona árásir verđi ekki gerđar sem eru mikiđ áfall fyrir reksturinn.
- Móta stefnu og innleiđa verklagsreglur fyrir rekstur upplýsingatćknikerfa
- Búa til áćtlanir fyrir samfelldan rekstur
- Framkvćma áhćttumat
- Innleiđa ISO/IEC 27001 upplýsingaöryggisstađalinn en hann inniheldur öll atriđin fyrir ofan og meira til.
- Fá faggilda vottun skv. ISO/IEC 27001
2.9.2010 | 21:16
Eyđibýlaganga á Ţingvöllum
Bláskógabyggđ heitir sveitin sem Ţingvellir eru stađsettir í. Í gćrkveldi bar byggđin međ réttu heitiđ Bláberjabyggđ svo mikiđ var af bláberjum í Eyđibýlagöngu Útivistarrćktarinnar. Bláskógar eru annađ nafn yfir Ţingvelli.
Lagt var af stađ frá Ţjónustumiđstöđinni og gengiđ eftir skógarrjóđri ađ Skógarkoti. Á leiđinni var mikiđ af bláberjum. Í Skógarkoti bjó mađur ađ nafni Kristján Magnússon (f. 1776) og var hreppstjóri. Hann kom í Ţingvallasveit um áriđ 1800 og nćr í heimasćtuna í Skógarkoti 1801 og tekur viđ jörđinni áriđ 1806. Hann varđ mikilhćfur bóndi og nýtti skóginn vel ásamt ţví ađ afla sér og sínum fiskjar úr Ţingvallavatni. Hann átti í deilum viđ Ţingvallaprest um skógarnytjar en ţekktustu deilur hans voru vegna barnseigna en hann eignađist 7 börn međ eiginkonu sinni og 7 börn međ hjákonum. Kristján var dćmdur til hýđingar vegna ţessara mála en sýslumađur fannst ekki tćkt ađ refsa besta hreppstjóra sínum og var ţađ aldrei gert. Fróđir menn telja ađ um 6000 manns megi rekja til Kristjáns í dag. Ég er ţó ekkert skyldur honum ţví Íslendingabók segir ađ enginn skyldleiki sé međ okkur.
Í bókinni Hraunfólkiđ - Saga úr Bláskógum eftir Björn Th. Björnsson er rakin saga Skógarkots og fólksins sem ţar bjó á 19. öld.
Ţađan var stefnan sett á Hrauntún. Fara ţarf yfir Ţingvallaveg og eru ţađan 1,8 km ađ garđhleđslu viđ Hrauntún.
Í Hrauntúni má sjá rústir af koti sem var reist um 1830. Hrauntún var í eyđi um aldir og áriđ 1711 var ţađ einungis ţekkt sem örnefni í skóginum. Erfitt var um alla ađdrćtti í Hrauntúni og ţótti ţađ afskekkt. Áriđ 1828 flutti Halldór Jónsson í Hrauntún og eftir ţađ var samfelld byggđ í Hrauntúni í um 100 ár. Í dag bera veggjarbrot og tún enn merki um búskaparhćtti ţar.
Dagsetning: 1. september 2010
Hćđ: 108 metrar
Hćđ í göngubyrjun: 108 metrar, viđ Ţjónustumiđstöđ.
Heildargöngutími: 115 mínútur (19:20 - 21:15)
Erfiđleikastig: 1 skór
GPS-hnit Skógarkot: N: 64.15.734 - W: 21.04.230
Vegalengd: 8,1 km
Veđur kl 21, Ţingvellir: 12,8 gráđur, 1 m/s af S, raki 85%
Ţátttakendur: Útivistarrćktin, 36 manns.
GSM samband: Já - gott samband
Gönguleiđalýsing: Létt ganga um skógarstíga í ţjóđgarđinum. Lagt frá Ţjónustumiđstöđ ađ Skógarkoti ţađan er stefnan sett á Hrauntún. Ţar eru uppistandandi garđhleđslur og heimreiđ ađ bć sem er löngu horfinn
Sögustund viđ Skógarkot
Heimild:
Ferlir.is og thingvellir.is
Ferđalög | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2010 | 15:20
Í fótspor Ţórbergs
Vegna útkomu bókarinnar Meistarar og lćrisveinar bauđ Forlagiđ í gönguferđ um Vesturbćinn, í fótspor Ţórbergs. Bókin eđa kiljan er byggđ á stóra handritinu hans Ţórbergs Ţórđarsonar sem er ađ líkindum uppkast ađ ţriđja bindi skáldćvisögu hans, í kjölfar Íslensks ađals og Ofvitans.
Ţađ var fjölmenn ganga og sá meistarinn Pétur Gunnarsson, rithöfundur um ađ uppfrćđa lćrisveina Ţórbergs. Fyrst var gengiđ ađ Unuhúsi, síđan norđur Norđurstíg og leitađ af húsi númer 7. Ţađ fannst ekki, líklega horfiđ eđa búiđ ađ breyta skipulagi. Ţetta kallar ţörfina fyrir ţví ađ merkja hús em hafa menningarsöguleg verđmćti. Ţađan var haldiđ ađ Vesturgötu 35 og endađ viđ Stýrimannastíg 9 en ţar var bókin Bréf til Láru skrifuđ.
Pétur greindi okkur frá ástandi í Reykjavík og ađstćđum hjá Ţórbergi og las úr kaflanum í bókinni. Ég tek hér beint bút úr bókinni en hann á vel viđ, ţađ eru ađ koma mánađarmót.
Norđurstígur 7
"Í ţessari vistarveru var ég í tvö ár. Húsaleigan var ađeins 5 krónur á mánuđi. Ég gat allt af stađiđ í skilum međ hana. En stundum var ég algerlega frá verki tvo til ţrjá daga fyrir mánađarmótin af áhyggjum út af ţví, hvar ég gćti náđ í 5 krónur í húsaleiguna. Ţá rölti ég ćfinlega aftur og fram um göturnar allan daginn frá morgni til kvölds. Skyldi ţessi vilja lána, eđa ţessi eđa ţessi? Ekki strax. Seinna í dag. Ekki í dag heldur á morgun, í fyrramáliđ. Ţá verđ ég kjarkbetri, ţegar ég er nývaknađur. Og í fyrramáliđ sagđi ég: Ekki strax. Ekki fyrr en ég er búinn ađ éta miđdegismatinn. Ţá líđur mér betur, ég verđ árćđnari. Eftir miđdegismatinn: Ţađ liggur ekkert á fyrr í í kvöld. Ţađ er eiginlega betra ađ slá á kvöldin. Ţá er dimmara og sést ekki eins framan í mann, og ţá eru menn í betra skapi etir ađ vera búnir ađ lúka ţessu leiđinlega striti dagsins. Ţannig leysti ég flest húsaleiguvandrćđi mín á árunum 1913 til 1917."
Eftir ţessa hressandi göngu í Vesturbćnum var keypt eintak af bókinni Meistarar og lćrisveinar. Ţađ er miklu skemmtilegra ađ lesa bókina eftir gönguna. Mađur fćr miklu betri tilfinningu fyrir húsunum og ađstöđunni sem í bođi var á ţessum erfiđu tímum.
Göngumenn í fótsporum Ţórbergs í húsasundi fyrir utan Norđurstíg 5. Ţórbergur leigđi herbergi á Norđurstíg 7. Ţar varđ fyrsta endurfćđingin en ţá losnađi hann undan áhrifum frá Einar Benediktssyni í skáldskap.
Hér er kort af ja.is sem sýnir núverandi skipulag viđ Norđurstíg.
Bćkur | Breytt s.d. kl. 15:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2010 | 21:39
Sandfell (409 m) viđ Hagavík
Ţađ er alltaf jafn glćsilegt veđur á miđvikudagskvöldum. Sandfell viđ Hagavík var nćsta fjall á dagskrá hjá Útivistarrćktinni. Ekiđ var eftir Nesjavallaveginum og skartađi leiđin sínu fegursta á leiđ austur í Grafning ađ Hagavík.
Ţau eru mörg sandfellin hér á landi. Í kortabók Íslands sem MM gaf út áriđ 2000 eru 23 Sandfell merkt inn á Ísland en takmark okkar er ekki eitt af ţeim.
Gönguferđin hófst á ţví ađ feta sig í gegnum birkiskóg. Eitthvađ sást til berja enn ekki eins mikiđ og á Međalfelli í Kjós. Gengiđ var inn međ Líktjarnarhálsi sem kenndur er viđ Líktjörn sem hvergi sést og sneitt upp á fjallshrygginn.
Nestisstopp var fyrir neđan vörđu og sáu menn niđur í Löngugróf sem skilur ađ Sandfell og lágreist Mćlifell en ţau eru nokkuđ mörg hér á landi (9 í Kortabók). Síđan var haldiđ sömu leiđ til baka til ađ ná heim fyrir myrkur. Hćgt er ađ fara niđur af fellinu fyrir ofan Löngugróf og skođa Ölfusvatnsgljúfur.
Víđsýni ágćtt af Sandfelli yfir ţekktu fjöllin í kringum slétt Ţingvallavatn. Eyjafjallajökull var kolsvartur af ösku en í vikubyrjun sást snćr á toppnum. Tindfjallajökull var hvítari og jöklalegri. Hengillinn bar af í vestri. Nafni fellsins, eyjan Sandey var glćsileg á Ţingvallavatni.
Dagsetning: 25. ágúst 2010
Hćđ: 409 metrar
Hćđ í göngubyrjun: 108 metrar, viđ Hagavík (64.07.442 - 21.09.895).
Uppgöngutími: 55 mín (19:20 - 20:15) 2.09 km.
Heildargöngutími: 115 mínútur (19:20 - 21:15)
Erfiđleikastig: 1 skór
GPS-hnit varđa: N: 64.06.625 - W: 21.10.889
Vegalengd: 4,3 km (1,7 km bein lína frá bíl ađ toppi.)
Veđur kl 21, Ţingvellir: 8,9 gráđur, 6 m/s af NA og bjart, raki 68%
Ţátttakendur: Útivistarrćktin, 35 manns.
GSM samband: Já - gott samband
Gönguleiđalýsing: Létt ganga sem hófst í skógi viđ Hagavík. Grjót laust í sér og blá Ţingvallafjöll blasa viđ er upp er komiđ.
Gengiđ eftir Líkatjarnarhálsi á topp Sandfells viđ Hagavík. Grettistak fylgist međ umferđ einmanna á hryggnum.
Ferđalög | Breytt s.d. kl. 21:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggiđ
Sigurpáll Ingibergsson
Fćrsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.7.): 13
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 140
- Frá upphafi: 236849
Annađ
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 107
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar