28.4.2012 | 12:49
Geir negldur
Niðurstaða Landsdóms kom mér ekki á óvart í landsdómsmálinu nr. 3/2011: Alþingi gegn Geir Hilmari Haarde. Ég var búinn að komast að þessari niðurstöðu eftir að hafa fylgst með aðalmeðferðinni. Til að komast að þessari niðurstöð notaði ég þekkingu mína á gæða- og öryggismálum.
Forsætisráðherran var dæmdur fyrir að látið farast fyrir að framkvæma það sem fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrár lýðveldisins um skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna 2008 kemur fram að samræmt verklag var ekki fyrir hendi í mörgum málum. Boðleiðir hafa verið óljósar og ábyrgð ekki skýr.
Niðurstaða Landsdóms tekur undir undir það. Stjórnsýslan hefur verið í molum. Það er ekkert sprenghlægilegt við það.
Ég er vottaður úttektarmaður (Lead Auditor) í ISO 27001 öryggisstaðlinum og í úttektum leitað að sönnunargögnum um að verklagi sé fylgt. Í máli Geirs fundust engin sönnunargögn um að ráðherrafundir hafi verið haldnir. Það má líkja því við kröfu í kafla - 7 Rýni stjórnenda á öryggisstjórnkerfinu, við getum kallað það ráðherraábyrgð.
Úttektarmenn meta það svo hvort frábrigðið sé meiriháttar (major nonconformity) eða minniháttar. Fáir stofnun á sig meiriháttar frábrigði, þá endurnýjast vottunarskírteini ekki. Því má segja að Geir og forsætisráðuneyti hans hafi sloppið með minniháttar frábrigði.
Ein mikilvægasta eign hvers fyrirtækis og stofnunar er traust og gott orðspor. Þetta er eign sem ekki fæst af sjálfu sér og auðvelt er að spilla.
Það er einn lærdómurinn af Landsdómsmálinu að stjórnsýslan á Íslandi er ekki nógu gegnsæ. Ef takast á að lagfæra það sem aflaga hefur farið þarf að skrá verklag og skýra boðleiðir og ábyrgð stjórnenda. Í ljósi stöðunnar er það beinlínis nauðsynlegt fyrir stofnanir að sinna öryggis- og gæðamálum af festu og sýna fram á fylgni við alþjóðlegar öryggis- og gæðakröfur.
Því má segja að Geir hafi verð negldur fyrir ógagða stjórnsýslu fyrri ára. Geir er ekki gert að taka út refsingu fyrir athæfið og er það eflaust næg refsing að lenda fyrir Landsdóm.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2012 | 14:25
Stíflisdalur
Stíflisdalur hýsir Stíflisdalsvatn og samnefndan bæ. Nokkur sumarhús útfrá bænum. Einnig er eyðibýlið Selkot innar í dalnum og var í alfaraleið fyrr á öldum. Kjölur (785 m) er í norðri en var ekki toppaður. Eitt Búrfellanna (783 m) í Bláskógabyggð er skammt hjá. Norðan við þau er Leggjabrjótur og tignarlegar Botnssúlur.
Laxá í Kjös á upptök í Stíflisdalsvatni og Skálafell er tignarlegt í vestri, Hengill í suðri. Mjóavatn er fyrir sunnan Stíflisdalsvatn.
Gekk upp Nónás að Brattafelli meðan aðrir félagar í GJÖRFÍ gengu á skíðum að Mjóavatni. Útsýni stórbrotið og telur maður ljóst af hverju vatnið og dalurinn hefur fengið nafn sitt og göngumaður heldur að hann kunni að lesa landið. Að hraun hafi runnið fyrir mynni dalsins sem er ekki dæmigerður. En hvernig er nafnið Stíflisdalur til komið? Í örnefnalýsingu yfir Selkot stendur einfaldlega að stífli merki stöðuvatn og má jafna því við Vatnsdal. Þar fór jarðfræðispekin hjá manni.
Hægt er að sjá helstu örnefni á kortasjá Kjósarhrepps og er það til fyrirmyndar.
Dagsetning: 18. febrúar 2012
Þátttakendur: GJÖRFÍ, skíðagönguferð, 9 göngumenn
Upptök Laxár í Kjós. Skálafell (771 m) í vestri og viku síðar var opnað fyrir skíðafólk í fellinu.
Heimild:
Ferlir - Selkot - Kjálká - Selkotsvegur - Selfjall - Selgil
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 2
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 114
- Frá upphafi: 236855
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 82
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar