7.4.2009 | 21:47
Páskabjór frá Skjálfta
Páskabjórinn frá Skjálfta er tímamótaframleiðsla. Fyrsti íslenski hveitibjórinn. Ölvisholt brugghús sem framleiðir Skjálfta er eitt af skemmtilegum örbrugghúsum "micro-brugghúsum" hér á landi og með þjóðlegar nýjungar. Framleiðslan er gæðaframleiðsla og ástríða hjá framleiðandanum.
Valgeir Valgeirsson, bruggmeistari og félagar hjá Skjálfta eru að gera góða hluti og uppfylla vel væntingar bjórunnandans. Ég smakkaði Páskabjór frá Skjálfta og er hann kraftmikill. Páskabjórinn er sterkur, 6.2% og súkkulaðikeimur kemur fram eftir stutt ferðalag á tungunni. Smellpassar með páskaegginu. Bjórinn er rafgullinn á litinn enda mjöðurinn grófsíaður, því er hann skýjaður. Liturinn kemur af ristuðu korni sem notað er við bruggunina.
Ég hvet bjórunnendur til að prófa páskabjórana sem eru til sölu, frá Skjálfta, Kalda og Víking.
Á vefnum RateBeer.com fær Páskabjór frá Skjálfta ágætis dóma.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2009 | 23:14
Sama frétt um Frjálslynda í apríl 2007
Mikið hljóta könnuðir Capacent Gallup að verða ánægðir þegar Frjálslyndi flokkurinn hættir að bjóða fram í kosningum. Sama niðurstaða var hjá þeim í lok apríl 2007.
Innlent | mbl.is | 28.4.2007 | 19:03
Frjálslyndir ná ekki manni inn í Norðvesturkjördæmi samkvæmt könnun
Frjálslyndi flokkurinn kemur ekki manni inn á þing í Norðvesturkjördæmi ef marka má skoðanakönnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Ríkisútvarpið en flokkurinn fékk tvo menn í kjördæminu í síðustu kosningum, þar af var annar jöfnunarþingmaður.
Þetta eru þá eflaust öfug Bradley-áhrif!
Engum spáð inn en Guðjón Arnar Kristjánsson og Kristinn H. Gunnarsson uppskáru tvö sæti.
![]() |
Vinstri græn stærst í NV-kjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.4.2009 | 18:36
Spilum 4-5-1 með Adebayor á toppnum
Þá verður spilað leikkerfið 4-5-1 með Adebayor einan á toppnum á Estadio El Madrígal, gegn leikmönnum Gula kafbátsins. Það verður gaman að sjá Robert Pires og kannski fær Pascal Cygan tækifæri.
Gott að það verða ekki fleiri landsleikjahelgar á næstunni, nóg langur er hnjasklistinn eftir þær.
Það stefnir því í 0-0 leik á morgun.
![]() |
Van Persie ekki með Arsenal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2009 | 11:44
Netbankinn er tómur
Þeim hefur hríðfækkað netbönkunum eftir bankahrunið. Tveir netbankar sem ég hef notað hafa lokað. Ég fór því niður í KB-banka í niðri í Smára í morgun en hann er staddur á jarðhæð turnsins.
Eftir að hafa slegið inn PIN númer og valið upphæð, þá kom melding, Netbankinn er tómur. Síðan var mér boðið að halda áfram. Ég fór aðra umferð og bað um minni upphæð, en sama svar. Netbankinn var tómur. Ég gat fundið takka, Hætta við og þá kom kortið.
Ég gafst ekki upp, fór upp í fjármálahverfið í Hamraborg og þar fann ég Netbanka sem ekki var tómur. Ég á því lausafé.
4.4.2009 | 10:50
Hrossakjötsveisla og brids á Hala
Þórbergur Þórðarson var ekki þekktur fyrir að spila brids. Hans miklu hæfileikar lágu á öðrum sviðum. Um síðustu helgi var blásið til hrossakjötsveislu og bridsspilamennsku í Þórbergssetri. Ég skráði mig til þátttöku og var meðal 40 spilara víða af lanndinu, eða 20 para.
Hugmyndina að mótinu skemmtilega á bloggvinurinn Þórbergur Torfason, á Hala. Markmiðið er að standa fyrir góðri hrossakjötsveislu og spila, rétt eins og Halamenn gerðu síðustu öld. Faðir hans, Torfi Steinþórsson, á Hala var mikill félagsmálafrömuður og áhugamaður um spilamennsku og gekkst hann fyrir bridgekeppni og hrossakjötsveislum í Suðursveit á árum áður. Afkomendur hans hafa tekið að sér að halda merkinu á loftinu og halda við hefðinni. Þetta er því mót með sögu og karakter.
Ég renndi austur ásamt spilafélaga, Guðmundi Guðjónssyni, en það eru um 15 ár síðan við spiluðum saman í stórmóti síðast. Komið var að Hala um nónbil og við tékkuðum okkur inn á vistlega bændagistingu. Ég fékk herbergi númer 22, kennt við Skötusker. En herbergin bera nöfna örnefna í kringum Halatorfuna.
Þegar ég mætti á staðinn, beið mín flókið en skemmtilegt verkefni. Aðstoða við að koma mótinu af stað en hinir hressu skipuleggjendur, Valdimar Einarsson og Ragnar Björnsson voru búnir að vinna mikla grunnvinnu. Mér til furðu var fartölva notuð sem ég keypti til Bridsfélags Hornafjarðar fyrir 14 árum. Það voru skemmtilegir og óvæntir fagnaðarfundir. Forritið sem var á tölvunni svaraði hverri skipun vel og reiknaði einnig fullkomlega. Svo fullkominn var útreikningurinn að hún setti undirritaðan í efsta sæti strax í byrjun móts og hélt honum þar í kulda og trekk út allt mótið. Hver segir svo að líftími tölvu sé aðeins þrjú ár!
Hrossakjötsmeistarar 2009 urðu því Sigurpáll Ingibergsson - Guðmundur Guðjónsson. Verðlaunin voru ekki af verri endanum. Tvær fróðlegar bækur, önnur um Þórberg og hin um Skaftafell. Auk reyktrar Halableikju.
Það var meira í boði heldur en hrossakjöt á mótsstað. Vel skipulögð áthlé á milli slag. Skaftfellsk súkkulaðiterta var um kvöldið, hollur morgunverður á sunnudagsmorgun og stórgott bleikjuhlaðborð í áthléi á sunnudaginum. Allt framleitt á staðnum. Sjáflbært samfélag er orðið sem kemur upp í hugann.
Við héldum því heim á leið, vel mettir, fróðari og sigurreifir.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.7.): 1
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 86
- Frá upphafi: 236869
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar