31.5.2009 | 14:21
Adobe Reader - stór öryggisgalli
Adobe Acrobat Reader er vinsælt forrit til að lesa .pdf skjöl. Þetta er vinsælasta forritið á tölvum heims í dag. Það vita tölvuþrjótar og hafa því fundið veikleika í forritinu sem leiða til þess að komast inn í einkatölvur.
Mikko Hypponen, vírusveiðimaður hjá F-Secure segir að frá 1. janúar til 16. april 2008 hafi fundist 128 afbrigði af árásum en sama tímabil í ár eru þær orðnar 2.035 eða nær 16 földun. Hann mælir eindregið að fólk hætti að nota Adobe Acrobat Reader.
Einn öflugasti Trjouhestur sem nú gengur um á Netinu heitir Gumblar og er ættaður frá Kína. Hann kemst inn í einkatölvur í gegnum .pdf skjöl og nýtir sér veikleika í JavaScriptum í Adobe Reader. Talið er að markaðshlutdeild hans sé 40% af spilltum vefsíðum. Nái Gumblar að sýkja einkatölvu verða leitir á Google leitarvélinni ómarktækar og eru síður sem upp koma beint á vefsíður með enn meiri spillikóða.
Ein leið sem tölvunotendur geta er að hætta að nota Adobe Reader og sækja sér annað tól til að lesa .pdf skrár.
Önnur leið er að uppfæra reglulega Adobe og hafa nýjustu vírusvarnir tiltækar.
Vilji fólk halda áfram með Adobe Reader 9, þá geta þeir tekið út sjálfvirkar stillingar í sambandi við JavaScriptur.
1. Vekið Acrobat or Adobe Reader.
2. Veljið Edit > Preferences
3. Veljið JavaScript flokkinn
4. Afhakið Enable Acrobat JavaScript möguleikann
5. Smellið á OK
Heimildir:
SecurityProNews, USA Today, itNews.com
Meginflokkur: Tölvur og tækni | Aukaflokkar: Löggæsla, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 14:32 | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 233595
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.