9.8.2008 | 12:58
Fangar frelsisins
Í dag eru rétt tíu ár síðan minnismerkið um Fjalla-Eyvind og Höllu, Fangar frelsisins, var afhjúpað á Hveravöllum.
Í fjallaferðum um óbyggðir Ísland er mér ávallt hugsað til þessara útileguhetja. Saga þeirra hefur gefið manni kraft.
Ég var staddur á Hveravöllum á heitasta degi ársins, miðvikudaginn 30. ágúst þegar hitamet féllu. Þau skötuhjú hafa örugglega ekki upplifað annan eins hita á allri sinni æfi á Hálendi Íslands.
Listaverkið er eftir Magnús Tómasson, myndlistarmann á Ökrum á Mýrum. Fjalla-Eyvinarfélagið stóð á bakvið hugmyndina.
Listaverkið samanstendur af rimlum og steinum. Innan rimlanna eru tvö steinhjörtu, annað er sótt til Súðavíkur í fæðingarsveit Höllu, hitt að Hlíð í Hrunamannahreppi á fæðingarstað Eyvindar.
Á Kiðagili í Bárðardal er sýningin útilegumenn í Ódáðahrauni - goðsögn eða veruleiki og koma þau Eyvindur og Halla við sögu þar einnig Grettir og fleiri góðir menn.
Útlagar neyddust til að draga fram lífið í útjaðri samfélagsins. Sögur af útlögum í fornsögum minna oft á útlagana í villta vestrinu, en margir hafa bent á líkindi með þeim sagnaheimum.
Nú fer eflaust að styttast í að stórmynd um útilegumenn verði framleidd á Íslandi en á fyrri hluta síðustu aldar voru leikrit og kvikmyndir byggðar á sögu Fjalla-Eyvindar vinsælt efni.
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 5
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 59
- Frá upphafi: 233597
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 50
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er frábært Palli að fá þessa úttekt á verkinu Fangar frelsisins á Hveravöllum. Frá því ég leit það augum hefur það skipað alveg sérstakan sess í huga mér og magnaði upp nærveru og áhrif þeirra ólánssömu persóna Eyvindar og Höllu. Þau unnu frelsinu svo heitt að þau urðu að gjalda það dýrasta verðinu : sjálfu lífinu.
Þakka þér og bestu kveðjur frá Höfn.
Guðrún Ingimundardóttir
Guðrún Ingimundardóttir (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 21:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.