Jöklunum blæðir

Í nýlegri skýrslu, SVALI, en hún er norrænt rannsóknarverkefni kemur fram að Íslensku jöklarnir þynnast nú um u.þ.b. 1 m á ári að meðaltali. Það jafngildir 9,5 km³ vatns á ári og leggja þeir um 0,03 mm árlega til heimshafanna. 

Samkvæmt skýrslunni hafa jöklar við Norður-Atlantshaf hopað og þynnst hratt síðustu árin eins og raunin er með jökla víðast hvar á jörðinni.

Á ferð minni undir Öræfajökli tók ég mynd af Hólarjökli en hann er lítill skriðjökull úr risanum og fóðrar lítinn foss og litla á. 

Helstu orsakir bráðnunarinnar er tilkoma gróðurhúsaahrifa. Helstu áhrif gróðurhúsaárhrifa eru:

1)   Útstreymi gróðurhúsalofttegunda
2)   Minnkun lífmassa á jörðu með eyðingu frumskóga.  

Því ættu stjórnvöld, einstaklingar og fyrirtæki að setja áramótaheit. Minnka gróðurhusaáhrif og vinna að sjálfbærni.

30122012

Mynd tekin 30. desember 2012.  Rýrnunin á milli tveggja ára er augljós, jöklarnir bráðna sem aldrei fyrr.

29122010

Mynd tekin 29. desember 2010.

Sjá:
Hólárjökull 2007 - http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/259538/
Hólárjökull 2008 - http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/611572/
Hólárjökull 2009 - http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/911196/

Hólárjökull 2011 - http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/1192311/

Hólárjökull 2012 - http://fiskholl.blog.is/blog/fiskholl/entry/1253486/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þetta leynir sér ekki. Magnað hvað ljósmyndir segja mergfalt meira en mörg orð.

Jón Halldór Guðmundsson, 10.1.2013 kl. 13:13

2 Smámynd: Snorri Hansson

Einmitt þetta er galdur jökla. Þeir taka stöðugum breytingum. Þykkna,þynnast,skríða fram og hopa. Taka endalausum breytingum og hafa gert mjög lengi. Það er engin þykkt eða víðátta sú rétta .Þegar risa borgarís hrinur úr brún Grænlands jökuls með boðaföllum þá er gott að mynnast þess að þetta hefur verið að gerast um miljónir ára og er bara alls ekki að hætta því.

Snorri Hansson, 12.1.2013 kl. 02:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 233595

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband