5.2.2011 | 21:25
4-4 gegn Newcastle
Ótrúlegur viðsnúningur varð á leik Newcastle United og Arsenal í dag. Eftir meðvitundalausa byrjun Newcastle, þá voru þeir komnir 0-4 undir eftir 26 mínútur en tókst að jafna leika. Arsenal-menn sáu leiktímabilið renna út í sandinn en svo komu óvæntar fréttir frá Wolverhampton.
Byrjunin á leiknum í dag, minnti mig á leik sem ég sá á Highbury 28. febrúar 2004. Ósnertanlega tímabilið. Þá hóf Arsenal leikinn af krafti og á annarri mínútu skorðaði Robert Pires fyrsta mark leiksins. Á fjórðu mínútu kom Thierry Henry Arsenal í 2-0 og íslenskir Arsenal menn sem voru í hópferð voru farnir að spá í hvort tveggja stafa tala gæti birst á stöðutöflunni. Leikmenn Charlton með Hermann Hreiðarsson innanborð gerðu lítið annað á fyrstu fimm mínútum annað en að taka miðju.
Arsenal slakaði á klónni og í síðari hálfleik, á 59. mínútu minnkaði Daninn Claus Jensen muninn. Þegar uppbótartími var að renna upp, þá átti einn leikmaður Charlton hjólahestaspyrnu sem hafnaði í innanverði stönginni en sem betur fer, fyrir ferðamenn frá Íslandi, þá fór knötturinn í átt að hornfánanum. Naumur 2-1 sigur eftir frábært upphaf.
Ég hafði orð á þessum leik í dag kl. 15.05 og sagði áheyrendum frá heppni okkar. Ekki óraði mig fyrir því að hægt væri að klúðra fjögurra marka forystu en allt er víst hægt.
Keppnistímabilið 2008/2009 sáust þessar tölur tvisvar á stöðutöflunni. Fyrri leikurinn var gegn nágrönnunum, Tottenham og Liverpool á Anfield en þá skoraði Arshavin fernu. Þessir leikir þróuðust öðruvísi.
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 58
- Frá upphafi: 233596
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 49
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
sorglegur seinni hálfleikur hjá mínum!!!!
en sem betur fór, tapaði Man U í dag!
Guðmundur Júlíusson, 6.2.2011 kl. 02:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.