1.3.2009 | 17:21
Stoke City bjargaði deginum!
Stoke City stóð sig vel í dag þrátt fyrir að vera án innkastarans ógurlega, Rory Delap. Lið Potters var komið í vonlausa stöðu, 2-0 undir en náðu að jafna og taka tvö stig af Aston Villa. Arsenal þarf að spýta í lófana og ná þessu fjórða sæti og þurfa ekki að treysta á önnur lið.
Í pottinum eru 33 stig og þegar Fabregas, Walcott, Eduardo, Rosicky, Diaby og Adebayor mæta frískir til leiks, þá fara mörkin og stigin að koma.
4. Aston Villa 27 15 7 5 42:27 52
5. Arsenal 27 12 10 5 38:25 46
Næsti leikur Arsenal er í Birmingham við WBA á þriðjudaginn og Aston Villa á erfiðan útileik við Manchester City kvöldið eftir.
Þá gæti munurinn verið kominn niður í þrjú stig ef allt gengur upp. Séð frá sjónarhóli Arsenal manna.
Takist þetta ekki. Þá er til Krýsuvíkurleið. Hún er að vinna Meistaradeildina og taka Liverpool til fyrirmyndar. Komist Arsenal ekki í meistaradeildina eftir þessari þröngu leið, þá tapast tekjur upp á 40 milljónir punda.
Takist það heldur ekki, þá er bara að fara alla leið í UEFA keppninni á næsta ári og gera betur en á móti Galatasaray aldamótaárið 2000.
![]() |
Stoke náði jöfnu á Villa Park |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2009 | 00:02
Lífrænn bjórdagur
Í dag eru nákvæmlega 20 ár síðan Bjórdagurinn rann upp. Það var eftirminnilegur dagur. Þá opnaðist Ísland. Bjórbann var sett á árið 1915 og var aðeins hægt að drekka smyglaðan bjór eða flugfreyjubjór í heilan mannsaldur.
Í tilefni dagsins, þá keypti ég tvo lífrænt ræktaða bjóra til að fagna áratugunum tveim og fagna nýrri hugsun í bjórgerð. Minnka eiturefnin. Í dag voru norrænir víkingar og ráðmenn á ráðstefnu og var markmiðið að gera Norðurlönd að Grænum dal í Evrópu. Lífræn ræktun er partur af þeirri áætlun.
Lífrænu bjórarnir bresku sem til sölu í Vínbúðinni eru, Fuller's Honey Dew og menntabjórinn Brakspear Oxford Gold. Ég keypti tvö eintök í tilefni tímamótanna.
Flokkur: öl
Styrkleiki: 5%
Verð: 514 krónur.
Fuller's Honey Dew er eins og nafnið segir, hungansöl. Ljósgullin að lit og með mikið hungansbragð. Ferskur og með langt eftirbragð. Flaskan er 500 ml og virðuleg. Hungangsfluga flýgur á tappanum. Fínt hungansöl.
Þessi hunangsbjór er mest seldi lífræni bjór á Bretlandi.
Flokkur: öl
Styrkleiki: 4,6%
Verð: 405 krónur.Brakspear Oxford Gold er gullinn með miðlungs beiskju. Frískur og með styttra eftirbragð en Fuller's. bjórinn. Hungansbragð er yfrignæfandi. Áægtis hunangsöl.
Þessir tveir lífrænu bjórar eiga margt sameiginlegt. Hugnangsbrað skín í geng. Verðlagning er aðeins hærri en meðalbjórverð. Lífrænir bændur nota ekki eitur á plöntur og skordýr. Engin aukaefni, enginn sykur, engin gerilsneyðing Framleiðendur vinna ekki á MÓTI náttúrunni heldu MEÐ náttúrunni. Því er meiri aukavinna. Því er fórnarkostnaðurinn vonandi falin í minna DDT.Bloggfærslur 1. mars 2009
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.7.): 2
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 87
- Frá upphafi: 236870
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 76
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar