15.10.2007 | 18:44
Arsenalklúbburinn 25 ára
Fyrir sléttum 25 árum var Arsenalklúbburinn á Íslandi stofnaður á Selfossi. Stofnendur voru Selfyssingarnir Kjartan Björnsson og Hilmar Hólmgeirsson. Kjartan var formaður klúbbsins næstu 20 árin. Breiðhyltingurinn Jón Víkingur Hálfdánarson tók við stjórnartaumum árið 2002 og núverandi formaður, Grindvíkingurinn Sigurður Enoksson er búinn að stjórna félagsskapnum síðan í vor.
Fæðingin
15. október 1982 var föstudagur og framundan var leikur við WBA en gengi Arsenal í deildinni hafði verið slakt, eitt stig úr fyrstu fjórum leikjunum. Liðið var nýlega dottið út úr Evrópukeppi eftir að hafa tapað fyrir Spartak Moscow. Liverpool-vélin malaði vel á þessum árum og þannig má segja að ekki hafi verið kjöraðstæður til að stofna stuðningsmannaklúbb fyrir Arsenal á Íslandi.
"Það var ákveðið með stuttum fyrirvara að hittast heima hjá Kjartani. Hann bjó í forstofuherbergi á Grashaga 17 sem var vel skreytt með Vals- og Arsenalplakötum og myndum af hljómsveitum, aðallega unglingahljómsveitum. Við sátum þarna og lögðum drög að starfsemi klúbbsins og skilgreindum markmið: Stuðla að ferðalögum á Highbury, selja Arsenalvarning og gefa út blað. Klúbburinn var því stofnaður í herberginu hjá Kjartani á 70 cm beddanum."
Svo mælti Hilmar Hólmgeirsson stofnfélagi.
Í dag eru um 1.500 virkir stuðningsmenn í Arsenalklúbbnum á Íslandi.
Til hamingju með daginn Arsenalmenn á Íslandi!
Heimild:
Arsenal - 20 ára - Bókin um okkur stuðningsmenn Arsenal
15.10.2007 | 00:14
Heima ****
Við Særún fórum í Háskólabíó í gærkveldi og borguðum fyrir minnisstæða tónleika í Öxnadal 28. júlí 2006. Það var skemmtileg sveitastemming undir Hrauntindinum hjá bænum Hálsi hvar Jónas Hallgrímsson ólst upp stutt frá. Bílarnir keyrðu í röð inn á nýslegið túnið og lögðu í skipulagðar raðir sem markaðar voru af hvítum heyböggum. Síðan var rölt yfir hæð og við blasti bálköstur og svið úti á miðju túni. Fólkið streymdi að, börn, mömmur og pabbar, afar og ömmur, einnig hundar. Fólk var klætt í íslenskar lopapeysur og sumir höfðu með sér teppi. Það var glæsileg stund þegar álfarnir í Sigur Rós og álfkonurnar í Amiinu gengu að sviðinu og hófu tónleikana af miklum krafti.
Myndin Heima er afurð af frumlegu tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar sumarið 2006 og spilar landslagið stórt hlutverk. Flest lögin eru af plötunum Ágætis byrjun og Takk. Tónleikar voru haldnir á óvenjulegum og fámennu stöðum t.d. Djúpavík, Ásbyrgi og Kárahnjúkum. Einnig var komið við í Selárdal og tekið áhrifaríkt lag innan um listaverkin hans Samúels. Einnig er komið við á þéttbýlisstöðum, Ísafirði, Seyðisfirði og endað á Miklatúní í Reykjavík. Mörg skot eru af jöklunum á Skeiðarársandi og umhverfi hans. Kvikmyndatökulið tók glæsileg skot á Jökulsárlóni. En það vantaði bara að halda tónleika á svæðinu. Myndin er dulin áróðursmynd með góðan umhverfisboðskap.
Sigur Rós flytur tónlist sína á Íslensku en viðtöl við hljómsveitarmeðlimi eru á bjagaðri ensku. Snillingarnir í hljómsveitinni virðast vera feimnir. Viðtölin koma skringilega út og frasinn "you know" er of algengur. En að sama skapi gera viðtölin myndina persónulegri. Hljómgæðin voru mjög góð og hátalarar voru hátt stilltir í kvikmyndasalnum. Stemmingin sem skapaðist var góð.
Í myndinni er einnig farið í bakgrunn sveitarinnar og pælingar þeirra. Þeir eru óhræddir að prófa ný hljóðfæri, t.d. steinhörpu Páls í Húsafelli og notast við rímnakveðskap. Steindór Andersen kemur fram í einu rímnalagi, sem og kvæðakórinn Iðunn. En náttúrulegasta lagið á Vatnajökull sjálfur, smellirnir í honum eru magnaðir þegar hann skríður fram á sandinn. Það er því ekki furða að þeir hafi nýlega fengið verðlaun fyrir sérkennilegasta hljóminn á merkri tónlistaverðlaunahátíð.
Endirinn er athyglisverður, þegar efnislistinn rennur yfir, spilar sveitin tilfinningaþrungið lag. Allir gestir sátu sem fastast hugfangnir af laginu og hef ég ekki upplifað slíka setu áður meðan stafir birtast á skjá.
Við Særún segjum eftir þessa áhrifamiklu sýningu. Takk
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 15. október 2007
Um bloggið
Sigurpáll Ingibergsson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.4.): 0
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 425
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 350
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar