Fangar frelsisins

FangarFrelsisinsÍ dag eru rétt tíu ár síðan minnismerkið um Fjalla-Eyvind og Höllu, Fangar frelsisins,  var afhjúpað á Hveravöllum.

Í fjallaferðum um óbyggðir Ísland er mér ávallt hugsað til þessara útileguhetja. Saga þeirra hefur gefið manni kraft.

Ég var staddur á Hveravöllum á heitasta degi ársins, miðvikudaginn 30. ágúst þegar hitamet féllu. Þau skötuhjú hafa örugglega ekki  upplifað annan eins hita á allri sinni æfi á Hálendi Íslands.

Listaverkið er eftir Magnús Tómasson, myndlistarmann á Ökrum á Mýrum. Fjalla-Eyvinarfélagið stóð á bakvið hugmyndina.

Listaverkið samanstendur af rimlum og steinum. Innan rimlanna eru tvö steinhjörtu, annað er sótt til Súðavíkur í fæðingarsveit Höllu, hitt að Hlíð í Hrunamannahreppi á fæðingarstað Eyvindar.

Á Kiðagili í Bárðardal er sýningin útilegumenn í Ódáðahrauni - goðsögn eða veruleiki og koma þau Eyvindur og Halla við sögu þar einnig Grettir og fleiri góðir menn. 

Útlagar neyddust til að draga fram lífið í útjaðri samfélagsins. Sögur af útlögum í fornsögum minna oft á útlagana í villta vestrinu, en margir hafa bent á líkindi með þeim sagnaheimum.

Nú fer eflaust að styttast í að stórmynd um útilegumenn verði framleidd á Íslandi en á fyrri hluta síðustu aldar voru leikrit og kvikmyndir byggðar á sögu Fjalla-Eyvindar vinsælt efni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er frábært Palli að fá þessa úttekt á verkinu Fangar frelsisins á Hveravöllum. Frá því ég leit það augum hefur það skipað alveg sérstakan sess í huga mér og magnaði upp nærveru og áhrif þeirra ólánssömu persóna Eyvindar og Höllu. Þau unnu frelsinu svo heitt að þau urðu að gjalda það dýrasta verðinu : sjálfu lífinu.

Þakka þér og bestu kveðjur frá Höfn.

Guðrún Ingimundardóttir

Guðrún Ingimundardóttir (IP-tala skráð) 17.8.2008 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband