Snæfellsjökull (1.446 m)

Hverfandi jöklar er frábært framtak hjá Útivist.  Fyrsta jöklaferðin í þemanu var á konung íslenskra fjalla, Snæfellsjökul sunnudaginn 7. júlí 2013.

Snæfellsjökull (10 km2) hefur mikið látið á sjá á síðustu árum. Hann er 13. stærsti jökull landsins en þriðji vinsælasti íslenski jökullinn á Google með 394 þúsund leitarniðurstöður. En sögur um kraft jökulsins, Bárð Snæfellsás og glæsileg keilulögun og bloggfærslur á sólríkum dögum í höfuðborginni afla honum vinsælda.

Hverfandi jökull
Samkvæmt nýjum mælingum hefur Snæfellsjökull lækkað um einn og hálfan metra að meðaltali síðustu tíu ár. Mest þynnist hann á jöðrunum, sums staðar um 30-40 metra, minna á hákollinum en þar hefur hann þynnst um nokkra metra.
Á sama tíma hefur flatarmál hans minnkað um rúman ferkílómetra í um 10 ferkílómetra. Ef horft er aftur til byrjunar síðustu aldar þá er Snæfellsjökull helmingi minni nú en hann var að flatarmáli og ekki nema þriðjungur að rúmmáli. Ef ekki verður mikil breyting á tíðarfari þá hverfur Snæfellsjökull á næstu áratugum.        

Göngumenn höfðu fylgst vel með veðurspám og von var á lægð en síðdegis. En spár gerðu ráð fyrir björtu veðri fram eftir degi. 

Þegar lagt var af stað kl. 8 frá BSÍ sást til sólar en þegar kom á Snæfellsnesið var þungt yfir. Þó sá í sólarglennu á Arnarstapa. Gaf það göngumönnum von. Í hópnum voru 5 útlendingar, fjórðungur göngumanna og misvel búnir. Höfðu þeir mikinn áhuga á krafti Snæfellsjökuls og bráðnun jökla vegna hækkandi lofthita.

Þegar komið var á Jökulhálsinn, F570 keyrðum við inn í þoku og vonuðust bjartsýnustu menn eftir því að komast upp úr skýjunum, í sólina sem var í veðurkortunum. Undirbúningur hófst í rútunni og drukku menn fyrir ókomnum þorsta og komu orku í kroppinn. En þegar lagt var í gönguna kl. 11.40 sást að þokan var að þéttast.   Fararstjórinn, Guðjón Benfield klæddist gulum buxum og vonuðust menn til að þetta væri ekki eina gula sjónin í ferðinni.

Gengið var eftir gljúpu hjarni alla leið og þegar komið var í 1.000 metra hæð þá mættu fyrstu rigningardroparnir okkur. Áfram var haldið og bætti í vindinn og úrkomuna. Svöruðu göngumenn því með betri klæðnaði.  Ákveðið var að ganga aðeins lengur en sífellt bætti í. Því tók leiðangursstóri þá réttu ákvörðun að snúa við. Stundum þarf meira hugrekki til að snúa við en ana upp.  Göngumenn voru þá í 1.071 metra hæð og 1,4 km eftir.

Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson
Þeir félagar Eggert og Bjarni gengu á Snæfellsjökul 1. júlí 1753 en til forna hét jökulinn einungis Snjófell og talinn vera hæsta fjall á Íslandi. Þeir höfðu með sér loftvogir, áttavita kvikasilfursmæli. Einnig sterka taug og slæður fyrir augun og njarðarvött.

"$422. Menn töldu fyrirætlun okkar, að ganga á jökulinn, fullkomna fífldirfsku. Það var meira að segja talið með öllu ókleyft af ýmsum sökum. Í fyrsta langi væri leiðin svo löng og fjallið bratt, svo að ókleyft væri, í öðru lagi væru sprungurnar í jöklinum ófærar yfirferðar öllum mönnum, og loks var fullyrt, að menn yrðu blindir af hinu sterka endurskini sólarljóssins á jöklinum" 

Ekki urðum við  blind eða hringluð en hundblaut og köld.

Í hlíðum Snæfellsjökuls

Göngumenn á niðurleið og hafði veður aðeins batnað. Það sér móta fyrir förum eftir snjóbil og vélsleða frá ferðaþjónustu Snjófells Arnarstapa. 

Dagsetning: 7. júlí 2013 
Hæð Miðþúfu: 1.446 m 
GPS hnit á snúning: (N:64.48.643 - W:23.45.619)  í 1.071 metra hæð.
Hæð í göngubyrjun:  561 metrar (N:64.48.253- W:23.41.954) hjá snjósleðaleigu.
Hækkun: 510 metrar (885 metrar)          
Uppgöngutími: 120 mín (11:40 - 13:40) – 3 km loftlína
Heildargöngutími: 180 mínútur (11:40 - 14:40)  3,6 km

Erfiðleikastig: 2 skór
Vegalengd:  7,2 km 
Veður kl. 12 Gufuskálar: Alskýjað, S 9 m/s (10-13 m/s),  9,4 °C. Raki 73%

Veður kl. 12 Bláfeldur: Alskýjað, S 5 m/s (6-7 m/s),  9,2 °C. Raki 82%, skyggni 30 km.
Þátttakendur: Útivistarræktin, 20 manns með fararstjórum.
GSM samband:  Nei, ekki hægt að senda SMS í byrjun.


Gönguleiðalýsing
: Lagt frá snjósleðaleigu á Jökulháls. Gengið inn Hyrningsdal og stefnt á Þríhyrning. Þaðan tekin stefna á Jökulþúfur.   Hjarn alla leið frá vegi og sökk fótur ofaní. Þungt færi. Ekki sást í jökulsprungur.

Heimildir

Ferðadagbók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar - http://handrit.is/is/manuscript/view/IB02-0008

RÚV -  http://www.ruv.is/frett/snaefellsjokull-ad-hverfa

Snjófell - http://www.snjofell.is 

Vatnajokull.com - http://www.vatnajokull.com/Snaefellsjokull/ 

Vísindavefur.is - http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=4704

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull - http://ust.is/snaefellsjokull/

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 105
  • Frá upphafi: 226414

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 99
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband