Seldi kvikmyndina Heima til Mexíkó

HeimaÍ júní fór ég á fræga Náttúrutónleika hjá Sigur Rós,  Björk og fleirum í Laugardalnum. Ég gerð lítið myndband um lagið Glósóla.  Ég hlóð því á YouTube og nú eru heimsóknir að nálgast sjö þúsund. Það hefur hlotið ágætis dóma þó að það sé hrátt.

Nokkrir notendur YouTube hafa gert jákvæðar athugasemdir og eru mjög hrifnir af þessum frábæru sendiherrum okkar. Einnig hefur mér borist póstur í gegnum póstkerfið á YouTube. Ég svara ávallt.  Einn aðdáandi Sigur Rósar frá Mexíkó skrifaði  og bað mig um að lýsa upplifun minni af  Náttúrutónleikunum.  Ég gaf tónleikunum toppeinkunn og hvatti hann til að kaupa DVD diskinn Heima til að kynnast stórbrotinni náttúr landsins. Mexíkóinn keypti diskinn þótt verðið væri hátt. Ég fékk nýlega skeyti frá Mexíkóanum.

"The last friday i bought the dvd of heima and it wasnt cheap but EVEN THOUGH I BOUGHT IT and i already see the disc one the documentary and its really beautiful all the towns with that weird names are really nice thank you for telling me that heima exists .. and in wich town u live ? "

Hvað gerir maður ekki fyrir náttúruna, aðdáendur Sigur Rósar og landið sitt - Heima er frábær landkynning!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 75
  • Frá upphafi: 226261

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband