Hringuð vötn - Brunntjörn

Það eru töfrar í vatninu. Ég hef undanfarið unnið gengið hring í kringum stöðuvötn á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst voru þekktustu vötn og tjarnir hringaðar en svo fannst listi yfir 35 vötn í skýrslu um Vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu – ástand og horfur.

Það styttist í að hringnum verði lokað og þetta hefur verið stöðugur lærdómur en áhugaverðasta vatnið er Brunntjörn hjá Straumi. Ég komst að því eftir smá grúsk að Brunntjörn og tjarnir í Hvassahrauni eru stórmerkilegar og á heimsmælikvarða. Stutt og skemmtileg ganga sem minnir á Þingvallagöngu og dvergbleikja lifir þar sem hraun og lindir koma saman.

Í Brunntjörn hjá Straumi er um 2 m munur á vatnsborði eftir sjávarföllum og gróðurinn umhverfis lónin býr við sjávarföll ferskvatns, sem eru einstök skilyrði. Þessar ferskvatnstjarnir eru taldar svo sér á parti sem náttúrufyrirbæri að þær eiga ekki sinn líka, hvorki hér né erlendis. Hafa lærðar ritgerðir verið skrifaðar um sérkennilegt lífríki í Brunntjörn, til að mynda dvergbleikju, sem ekki er til annars staðar en í lónunum þarna og virðist ganga milli þeirra, enda mikill vatnsgangur undir hrauninu.
 
Lónin þarna og við Straum eiga sér þá skýringu, að undir öllu hrauninu og raunar undir mestöllum Reykjanesskaga mun vera jarðsjór á talsverðu dýpi. Ofan á jarðsjónum flýtur ferskt jarðvatn, sem er eðlisléttara og blandast mjög takmarkað jarðsjónum.
 
Í lónunum gætir sjávarfalla. Jarðvatnið hækkar þegar fellur að og sjávarstraumur flæðir inn undir hraunin. Þess vegna hækkar í lónunum á flóði, en vatnið er samt alltaf ferskt. Sum lón verða þurr á fjöru en geta orðið tveggja metra djúp á flóði.
 
Urtartjörn er annað nafn á tjörninni en nafnið var ekki þekkt og gáfu fuglaáhugamenn henni nafnið Urtartjörn en urtendur höfðust þar við að vetrarlagi. Ekki sást nein urtönd né dvergbleikja en einn rindill fylgdi okkur. Reykjanesbraut liggur niður í tjörnina. Verðum að vernda tjarnirnar, líffræðilegur fjölbreytileiki að veði. Heimsmarkmið númer 14, líf í vatni og 15 líf á landi.
 
Álverið er aðeins snertuspöl frá Straumstjörnum og austar Reykjanesbrautar eru minnst fjórar tjarnir, Brunntjörnin, Gerðistjörn, Gerðistjörn syðri og Stakatjörn.
 
Carbfix stefnir að því að binda kolefni í jörðu við Straumsvík. Vonandi hefur sú merkilega aðgerð ekki áhrif á lífríki Brunntjarnar og nálægar tjarnir.
 
Brunntjörn
Gönguferillinn
 
 
Sjávarföll
Það sést hvar sjávarfalla gætir í beltaskiptingu gróðurs í Brunntjörn og Reykjanesbraut liggur fast að tjörninni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 20
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 226219

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 75
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband