Héðinshöfði og Tungulending

Héðinshöfði og Tungulending, 31. júlí.

Fyrirhugaðri ferð um Tunguheiði var frestað vegna úrhellis. Það rigndi svo hressilega við Fjöllin.


Við Tungulendingu er hægt að sjá Tjörneslögin og var það mikil upplifun, þó ekki hafi fundist loðfíll en mikið um skeljar. Athyglisvert verkefni sem grásleppuskúrinn er að fá, breyting í gistiheimili, hvað annað.


Síðan var gengið um Héðinshöfða og horft á hvalafriðunarskipin sigla með ferðamenn. Einnig skoðuð eyðibýli sem sjórinn er að ná. Hlúð að særðri kind sem flæktist í neti og rætt um lundaveiði í Lundey. Tekin fyrir nokkur stökk úr Njálu. Að lokum var minnisvarði um Einar Benediktsson, skáld og athafnamann heimsóttur en hann bjó með föður sínum á bænum Héðinshöfða í nokkur ár. Síðan var haldið til Húsavíkur og Gamli Baukur styrktur meðan fylgst var með hvalafriðunarbátum koma og leggja frá bryggjunni. Skemmtileg vísindaferð um Tjörnes.

Tungulending

Tungulending. Endurbygging í gangi. Mjög svalur staður.

Héðinshöfði

Héðinshöfði og háflóð. Fínt fyrir "surfing". Brimbrettið gleymdist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 226329

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband