Swansea - Arsenal

Swansea er borg og sýsla í Wales. Hún er önnur þéttbyggðasta borg í Wales eftir Cardiff með rúmlega 230 íbúa. Swansea er við sendna strönd í Suður-Wales. Á 19. öld var Swansea aðalmiðstöð kopariðnaðarins og kölluð "Copperopolis".

SwansEn frá koparnum að knattspyrnunni. Í dag verður háður leikur Swansea og Arsenal á Liberty Stadium leikvellinum í Swansea City í 21. umferð Úrvalsdeildarinnar. Það hefur verið mikill uppgangur í Wales og endurspeglast það í gengi Swansea í Úrvalsdeildinni. Liðið spilar léttan og skemmtilegan nútíma bolta undir stjórn Norður-Írans Brendan Rodgers en hann vann með José Mourinho og Eiði Smára Guðjohnsen hjá Chelsea og hefur lært mikið af þeim.

Einn hættulegasti leikmaður Swansea er númer 11, vængmaðurinn Scott Sinclair en hann er með 95 í hraða í FIFA 12 leiknum, og skákar sjálfum Messi. Hann á eftir að glíma við bakvörðinn og miðvörðinn Johan Djourou en bakvarðarvandamál Arsenal á leiktíðinni eru skelfilega mikil.

Fyrri leikur liðanna var háður í ágúst og hafði Arsenal nauman sigur með marki frá Andrei Arshavin á 40. mínútu, hans eina mark á tímabilinu í Úrvalsdeildinni.

Einn Íslendingur er í leikmannahópi Swansea, kvótagreifinn Gylfi Sigurðsson sem er í láni frá Hoffenheim. Brendan þekkir til Gylfa en þeir tengjast í gegnum Reading.

Gælunöfn Swansea eru The Swans og The Jacks en sagan á bak við síðara nafnið er sú að á 17. öld voru aðeins úrvals sjómenn og vel virtir sem komu frá Swansea og gengu þeir undir nafninu "Swansea Jacks".

Arsenal og Swans hafa ekki leikið marga leiki í gegnum tíðina, aðeins 10 og hefur Arsenal unnið 6 en Swansea 3.

Þetta verður ekki mikill markaleikur en Swans gefa ekki mikil færi á sér á heimavelli en aðeins 16 mörk hafa litið dagsins ljós. Naumur útisigur er spáin og líklegast að Robin van Persie skori það en umræðan á Englandi hefur öll snúist um hvort Thierry Henry verði í byrjunarliðinu fyrir þennan leik en hann hefur aldrei náð að skora gegn svönunum. 


mbl.is Spilar Gylfi sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 11
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 226009

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband