Var tölvupósturinn dulkóðaður?

Það er fróðlegt að skoða tölvupóstsamskiptin á milli forsætisráðherra Íslands og Noregs með upplýsingaöryggi í huga.

Þegar tölvupóstur er sendur á milli tölva, þá getur hann komið við á nokkrum tölvum á leiðinni og til geta orðið nokkur afrit. Því getur þriðji aðili komist yfir efni tölvupóstsins. Einfalt dæmi er að þegar tölvupóstur er sendur þá er  það eins og að senda póstkort milli manna.

Til eru aðferðir til að koma í veg fyrir þetta vandamál. Það er dulkóðun eða dulritun.

Við dulkóðun tölvupósts, er meiri trygging fyrir því að sendandinn sé í raun sá sem hann segist vera, og að ekki sé búið að breyta honum á leið til viðtakanda.

Samkvæmt fréttum, þá hefur efni tölvupósts Jóhönnu og Stoltenbergs ekki komist í hendur þriðja aðila. Kannski hafa forsætisráðherrarnir gætt fyllsta öryggis.  Efni tölvupóstanna er nú orðið opinbert og það án hneykslis.

Öll fyrirtæki og stofnanir ættu að setja upp verklagsreglur um tölvupóst og fylgja ISO/IEC 27001 öryggisstaðlinum. Við lifum á merkilegum tímum þar sem vægi upplýsinga skiptir sífellt meira máli.


mbl.is Hærra lán ekki í boði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 80
  • Frá upphafi: 226254

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 72
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband