Hrossakjötsveisla og brids á Hala

Þórbergur Þórðarson var ekki þekktur fyrir að spila brids. Hans miklu hæfileikar lágu á öðrum sviðum. Um síðustu helgi var blásið til hrossakjötsveislu og bridsspilamennsku í Þórbergssetri. Ég skráði mig til þátttöku og var meðal 40 spilara víða af lanndinu, eða 20  para.

Hugmyndina að mótinu skemmtilega á bloggvinurinn Þórbergur Torfason, á Hala.  Markmiðið er að standa fyrir góðri hrossakjötsveislu og spila, rétt eins og Halamenn gerðu  síðustu öld. Faðir hans, Torfi Steinþórsson,  á Hala  var mikill  félagsmálafrömuður og áhugamaður um spilamennsku og  gekkst  hann fyrir  bridgekeppni og hrossakjötsveislum í Suðursveit á árum áður. Afkomendur hans hafa tekið að sér að halda merkinu á loftinu og halda við hefðinni. Þetta er því mót með sögu og karakter.

Ég renndi austur ásamt spilafélaga, Guðmundi Guðjónssyni, en það eru um 15 ár síðan við spiluðum saman í stórmóti síðast. Komið var að Hala um nónbil og við tékkuðum okkur inn á vistlega bændagistingu. Ég fékk herbergi númer 22, kennt við Skötusker. En herbergin bera nöfna örnefna í kringum Halatorfuna.

Þegar ég mætti á staðinn, beið mín flókið en skemmtilegt verkefni.  Aðstoða við að koma mótinu af stað en hinir hressu skipuleggjendur, Valdimar Einarsson og Ragnar Björnsson voru búnir að vinna mikla grunnvinnu.  Mér til furðu var fartölva notuð sem ég keypti til Bridsfélags Hornafjarðar fyrir 14  árum. Það voru skemmtilegir og óvæntir fagnaðarfundir.  Forritið sem var á tölvunni svaraði hverri skipun vel og reiknaði einnig fullkomlega. Svo fullkominn var útreikningurinn að hún setti undirritaðan í efsta sæti strax í byrjun móts og hélt honum þar í kulda og trekk út allt mótið.  Hver segir svo að líftími tölvu sé aðeins þrjú ár!

Hrossakjötsmeistarar 2009 urðu því Sigurpáll Ingibergsson - Guðmundur Guðjónsson.  Verðlaunin voru ekki af verri endanum. Tvær fróðlegar bækur, önnur um Þórberg og hin um Skaftafell. Auk reyktrar Halableikju.

Það var meira í boði heldur en hrossakjöt á mótsstað. Vel skipulögð áthlé á milli slag.  Skaftfellsk súkkulaðiterta var um kvöldið, hollur morgunverður á sunnudagsmorgun og stórgott bleikjuhlaðborð í áthléi á sunnudaginum. Allt framleitt á staðnum.  Sjáflbært samfélag er orðið sem kemur upp í hugann.

Við héldum því heim á leið, vel mettir, fróðari og sigurreifir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Í Spurningakeppni framhaldsskólana í gærkveldi kom mynd af Þórbergssetri í síðustu spurningu, þríþrautinni.  Hamrahlíðingar náðu ekki að svara fullkomlega og misstu af tækifæri að jafna leika. Spurt var um hvaða stofnun væri, havaða rithöfundur og sveitarfélag.   Sveitarfélagið var ekki nógu nákvæmt. Séníin í MR voru í sigurvímu og töldu Þórbergssetur vera í Djúpavogshreppi!

En meira af spurningakeppninni. Hvað er sporðdreki með margar fætur. MH svaraði 6 og MR 10. Ég spurði Ara litla, hann var með svarið á hreinu, 8.  Enda sérfræðingur í köngulóm.

Sigurpáll Ingibergsson, 5.4.2009 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 78
  • Frá upphafi: 226264

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 70
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband