Auður er valtastur vina

Í dag fer fram Allsherjarþing Ásatrúarfélagsins og Veturnáttablót félagsins haldið í kvöld. En fyrsti vetrardagur er í dag.

Útrásarvíkingarnir og stjórn peningamála hefði átt að tileinka sér forna visku úr Hávamálum. Fornmenn vissu eins og kemur fram í Hávamálum að auður er “valtastur vina” og aðeins eitt getur lifað ævinlega og það er góður orðstýr.

Fullar grindur 
sá eg fyr Fitjungs sonum.
Nú bera þeir vonar völ.
Svo er auður
sem augabragð:
hann er valtastur vina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Þessi vísa úr Hávamálum á ótrúlega vel við núna. Merkilegt hvað sannleikurinn er sígildur og óháður tíma.

Það má líka bæta við því sem Hallgrímur Pétursson sagði í Passíusálmunum:
Undirrót allra lasta
ágirndin kölluð er.
Frómleika frá sér kasta
fjárplógsmenn ágjarnir,
sem freklega elska féð,
auði með okri safna,
andlegri blessun hafna,
en setja sál í veð.

Þorsteinn Sverrisson, 27.10.2008 kl. 20:58

2 Smámynd: Jóhannes Einarsson

Svo eru það þessi höfð eftir honum Bjarti (HKL)

Hvað er auður, afl og hús

ef ekkert blóm vex í þinni krús

Jóhannes Einarsson, 29.10.2008 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 79
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband