Gestaþáttur

Nú er að bresta á helgi enn eina ferðina. Helgunum fylgir sú gæfa að menn fá stutt frí og þá gefst tími til heimsókna. Að taka á móti gestum getur stundum orðið þrautin þyngri og því ætti fólk að kynna sér Hávamál.

Hávamál er kvæði úr eddukvæðum. Hávamál, þ.e. mælt af hinum háa, eru lögð í munn Óðins þar sem hann segir frá lífsspeki sinni og hvernig skuli bera sig. Það innifelur hvort tveggja raunhæft og háspekilegt efni.

Legg ég því til að fólk kynni sér lífsspeki þessa og fari eftir í hvívetna. Hér eru þrjú fyrstu erindin en alls eru erindi Gestaþáttar 77. Hér er sagt hvernig maður á að haga sér þegar maður er gestur og mikil áhersla er lögð á mannasiði og siðferðisleg samskipti milli gestgjafa og gests. Hægt er að nálgast Gestaþátt á vef MA, snöruð á nútímalegt mál af Sverri Pál. 

Gáttir allar
áður gangi fram
um skoðast skyli,
um skyggnast skyli,
því að óvíst er að vita
hvar óvinir
sitja á fleti fyrir.

Maður ætti að gá vel og vandlega í kringum sig þar sem maður gengur um dyr því það er aldrei að vita hvar óvinir sitja fyrir manni. Þetta þurfa leikmenn Arsenal að hafa í huga þegar þeir heimsækja Old Trafford á morgun.

Gefendur heilir!
Gestur er inn kominn!
hvar skal sitja sjá?
Mjög er bráður
sá er á bröndum skal
síns um freista frama.
   
 

Góðir gestgjafar, það er kominn gestur. Hvar á hann að sitja?  Þeim manni líður ekki vel sem látinn er freista gæfunnar úti undir vegg. 

Elds er þörf
þeim er inn er kominn
og á kné kalinn.
Matar og voða
er manni þörf,
þeim er hefir um fjall farið.
  
 

Sá sem kominn er kaldur af ferð sinni þarfnast elds (hita). Sá sem hefur gengið yfir fjall þarf mat og (þurr) klæði.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

"Ei lítinn vísdóm

er hér at finna

Magur mætti hugsa daga fleiri

Við líka sem þú gjörir

Bloggi þessu með."

Þetta er góð speki sem mætti gjarnan hampa meira, eins og þú gerir með þessum skrifum.

Jón Halldór Guðmundsson, 15.2.2008 kl. 16:16

2 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Góður Jón Halldór!

Það mætti kalla speki þína góðu, Jónsmál!

Sigurpáll Ingibergsson, 15.2.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 226256

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband