Sigrar Íslandshreyfingin skoðanakannanir?

Nú er stóra spurningin hvort Íslandshreyfingin xI sigri skoðanakannanir. Í þessari könnun er hreyfingin með 1,9% en hjá Félagsvísindastofnun með 3,2%.   Það hefur gengið illa að mæla nýja flokka og þeir komið betur út í stóru könnuninni heldur en skoðana.

Gott dæmi eru borgarstjórnarkosningar 2002. Flestar kannanir sýndu xF með Ólaf Magnússon í kringum 3% en kjósendur sögðu 6,1%. Það hafði meira að segja áhrif á kjörstjórn í talningarherberginu. Þegar fyrstu tölur voru birtar var atkvæðum xF haldið "leyndum" en þegar kjörseðlar voru kláraðir var ekki hægt að fela meira og kom í ljós að Ólafur var kominn í
borgarstjórn og því þurfti að vekja doktorinn!

Ég vona að xÍ fái 5,1% atkvæða, það væri gargandi snilld. 


mbl.is Fylgi Framsóknarflokks dalar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Gleymdu því gamli minn. Til þess þarf að skora að meðaltali yfir 5% úr kosningum í heilum sex kjördæmum. Þetta er engan veginn sambærilegt við það sem þú bendir á í borginni forðum. Það var bara ein kosning í einni borg. Þú ert klárari í þessum kannanapælingum en svo að þú látir þig dreyma svona drauma í alvöru og trúir þeim sjálfur, þó Ómar reyni að bulla með þetta. Kíktu svo á gamlar slóðir. X F hefur aldrei verið öflugri en nú.

Magnús Þór Hafsteinsson, 11.5.2007 kl. 21:57

2 identicon

Ég vona það líka :)

lom (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 22:13

3 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Sæll félagi Magnús!

Þetta er möguleiki. Reykjavík er 1/3 kjördæmana og með góðum árangri í SV og halda sjó á landsbyggðinni getur xÍ náð markinu. Vikmörkin eru há, um 1,5%.  

Sama gildir um xF, það má smyrja ofan á 6% 

Ég er ánægður með miklar framfarir hjá xF í kosningabaráttunni.  Eina sem ég saknaði var að fá ekki  fría sýningu á kvikmyndina Hafið. Það hefði verið fínt að rifja þá hluti upp eftir Kompás þáttinn. 

Sigurpáll Ingibergsson, 11.5.2007 kl. 22:28

4 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Íslandshreyfing Ómars dó

 

orðin mögur lítið hró

 

Eins og lóan suður um sjó

 

sveif hún burt í nýjan mó

Ásgeir Rúnar Helgason, 11.5.2007 kl. 23:46

5 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Gleymdi að segja að vísan er eftir Vilhelmínu blogg-vinkonu mína sem er mikill aðdáandi Ómars og Íslandshreyfingarinnar.

Ásgeir Rúnar Helgason, 11.5.2007 kl. 23:48

6 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Er ekki uppstigningardagur framundan?

En vísan er skondin.

Sigurpáll Ingibergsson, 12.5.2007 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 82
  • Frá upphafi: 226256

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband