Skálafell við Mosfellsheiði (774 m)

Skálafell við Mosfellsheiði er einkum þekkt fyrir tvennt, endurvarpsmöstur og skíðasvæði. Verkefni dagsins var að kanna þessi mannvirki.

Leiðalýsing:
Ekið eftir Vesturlandsvegi, beygt upp í Mosfellsdal og síðan í átt að skíðasvæðinu. Vegalengd 3 km. Hækkun 400 m.

Facebook færsla:
Fín ganga á Skálafell (790 m) ásamt 40 öðrum göngugörpum, dásamlegt veður en smá þokubólstrar skyggðu á útsýnið en rættist nú ótrúlega úr því samt...

Skálafellið var feimið og huldi sig þegar okkur bar að garði. Þegar niður var komið tók deildarmyrkvi á sólu á móti okkur. Gott GSM-samband á toppnum.

Gengið var frá skíðaskála, hægra megin við gil nokkurt og síðan stefna tekin á efstu lyftuna en KR á hana. Þegar þangað var komið sást í snjó í 670 metra hæð og náði hann að mannvirkjum á toppnum. Skálafellið gerðist feimið er okkur bar að garði og gengum við í þokuna þar sem við mættum snjónum. Á uppleiðinni voru helstu kennileiti í suðri, Hengillinn, Búrfell í Grímsnesi, Leirvogsvatn og Þingvallavatn.

Þegar upp var komið tók á móti okkur veðurbarið hús en vindasamt er þarn. Veðurstöð er í byggingunni en hún bilaði fyrr um daginn.

Nafnið, Skálafell er pælingarinnar virði. Ein kenning er að skáli hafi verið við fjallið við landnám en útsýni frá því yfir helstu þjóðleiðir gott. Amk. 6 Skálafell og ein Skálafellshnúta eru til á landinu og ef fólki vantar gönguþema, þá má safna Skálafellum.

Skalafell-lyftur

 

Dagsetning: 1. júní 2011
Hæð: 774 metrar
Hæð í göngubyrjun:  379 metrar, Skíðasvæði í Skálafelli, (N:64.13.929 - W:21.25.922)
Hækkun: Um 400 metrar         
Uppgöngutími:  70 mín (19:05 - 20:15)  2,05 km
Heildargöngutími: 115 mínútur  (19:08 - 21:00), 4,1 km
Erfiðleikastig: 2 skór
GPS-hnit möstur:  N:64.14.442 - W:21.27.782
Vegalengd:  4,1 km
Veður kl. 20 Þingvellir: Bjart, NV  7 m/s, 9,8 gráður. Raki 65%  (minni vindur á felli)

Þátttakendur: Útivistarræktin, 41 þátttakandi af ýmsum þjóðernum, 12 bílar   

GSM samband:  Já  - Dúndurgott, sérstaklega undir farsímamöstrum.

Gönguleiðalýsing: Lagt af stað frá fyrsta bílastæði við skíðalyftur og gengið hægra (austan) megin við gilið. Síðan fylgt hæstu lyftu í 670 m hæð. Þá tók snjór og þoka við. Þaðan er stuttur spölur að fjarskiptamöstrum. Gengin sama leið til baka en hægt að halda í vestur, ganga út á nef fellsins, líta til Móskarðshnúka og halda til baka. Góð gönguleið hjá ónotuðu skíðasvæði. Skál fyrir góðri ferð!

Mostur

Stundum eru mannvirki á fjöllum listræn að sjá.

Skidalyfta

 Með hækkandi hita á jörðinni hefur notkun skíðamannvirkja í Skálafelli lagst af. Stólarnir hanga og bíða örlaga sinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Myndir á Útivist:
http://www.utivist.is/utivist/myndasogur/?cat_id=1062&ew_0_a_id=378761


Skálafell við Mosfellsheiði 1. júní 2011

Rúmlega 40 manna hópur gekk undir traustri stjórn á Skálafell. Þegar lagt var af stað úr bænum var ekki skýhnoðra að sjá á toppi fjallsins en þegar nálgaðist fjallið huldi ský stóran hluta þess. Það hafði þó ekki áhrif á ákafa fólks að komast upp sem allra fyrst. Þegar komið var langleiðina upp var snjór yfir öllu og landið í kringum hann mjög blautt og þá var gott að vera vel skóaður. Á toppnum rofaði aðeins til þannig að sást niður í Kjós.


Þetta kvöld átti að vera deildarmyrkvi á sólu en gangan tók svo skamman tíma að flestir voru komnir langleiðina heim áður en þau undur urðu. Þeir sem tóku lífinu með ró fylgdust með miklu sjónarspili sólar og skýja þar sem sólstafir vörpuðu sérkennilegri birtu á Esjuna. Þeir sáu líka þegar tunglið tók að skríða hægt og rólega fyrir sólu og kleip bita af henni. Guðbjartur Guðbjartsson sendi myndirnar.

Sigurpáll Ingibergsson, 9.6.2011 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurpáll Ingibergsson

Höfundur

Sigurpáll Ingibergsson
Sigurpáll Ingibergsson
Hornfirðingur búsettur í Kópavogi. Árgerð 1965.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG 4410
  • IMG 4385
  • IMG 4421
  • Á afskekktum stað
  • Tíminn051071

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 81
  • Frá upphafi: 226243

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband